Elliðaey
Elliðaey er þriðja stærsta eyja Vestmannaeyja, (stundum nefnd Ellirey), og er 0,45 km² að flatarmáli. Eyjan er víðast sæbrött, lægri að austanverðu þar sem greitt er uppgöngu um Austurflá þar sem reipi hefur verið komið fyrir. Elliðaey er mjög grösug og þar var heyjað fyrrum og einnig hagaganga fyrir sauðfé og jafnvel nautgripi. Gífurlega mikið varp er þar og fuglatekja. Eyjan er hæst að norðan, það er Hábarð (114 metrar yfir sjávarmáli). Á eyjunni eru tveir gjallgígar, Litli Bunki og Stóri Bunki. Talið er að eyjan hafi myndast í eldgosi sem hefur verið töluvert stærra en Surtseyjargosið, fyrir um 5-6 þúsund árum.
Graslendi þekur alla eyjuna og hefur gríðarlegur fjöldi lunda grafið sér holur þar. Í eyjunni er sauðfé beitt og lundaveiði er stunduð á sumrin.
Deildar meiningar eru um nafn eyjunnar en Elliðaeyjarnafnið dregur hún sennilega af skipi því að hún er lík stafnháu skipi. En sumir segja að nafnið Ellirey sé vegna þess að eyjan taki nafn sitt af tveimur hellum H-ellirey, en önnur eyja í Vestmannaeyjum dregur nafn sitt af hellum, Hellisey.
Í bókinni Örnefni í Vestmannaeyjum segir að Elliðaey sé „[...] í tilliti til stærðar og frjósemi Heimaeyjunni næst. Hún liggur frá N. til S. og er breiðust að norðan, en mjóst að sunnan. Að vestan og norðan er eyjan afar há, og eru hamrarnir næstum þverhníptir. Þó eru hillur og bekkir hér og hvar í þeim, á hverjum rilla og svartfugl verpa.“ Mynd:Elliðaey-kort.PNG
Austan til í eyjunni er hún mjög lág, og þar er uppganga í lítilli vík, sem kölluð er Höfnin.
Elliðaey er á náttúruminjaskrá því þar eru mjög miklar og sérstæðar sjófuglabyggðir. Í Elliðaey er að finna helstu varpbyggðir storm- og sjósvölu á Íslandi, sem telja tugþúsundir para. Fýll og langvía verpa mikið í Elliðaey, auk lunda.
Á eyjunni er stórt veiðihús í eigu Elliðaeyjarfélagsins, sem stundar þar Lundaveiði á sumrin og eggjatöku á vorin. Í gamla daga var veiðihúsið kallað "ból". Fyrsta bólið sem reist var í eynni stendur enn. Er það notað sem geymsla og stendur vestan við "Skápana". Árið 1953 var nýtt ból reist við rætur Hábarðs því gamla húsið stóðst ekki tímans tönn. 1985 var hafist handa við að byggja nýtt veiðihús á tveimur hæðum sem var áfast húsinu sem byggt var 1953. Lokið var við þá byggingu 1987. 1994 kom í ljós að bólið frá 1953 var orðið það illa farið að ekki var hægt að nota það lengur. Var það þvi rifið og annað hús reist í staðinn á sama stað, lauk þeirri byggingu 1996. Á árunum 2000-2001 var reist lítið hús vestan við bólið sem hýsir gufubað Elliðaeyjarfélagsins.
Höskuldur í Elliðaey
Ýmsar sögur eru til úr Elliðaey en ein þeirra hljóðar á þessa leið:
- Einhvern tíma fyrir löngu var margt fólk við slátt í Elliðaey. Þar á meðal var vinnukona sem hét Guðrún Höskuldsdóttir. Á almæli var að þessi kona var ekki ein saman og hún hafði orðið léttari í Elliðaey um sláttinn. Hún bar barnið út og faldi það í helli einum í lundabyggðinni skammt austur af Nautaréttinni. Þessi útburður var nefndur Höskuldur eftir föður móðurinnar og hellirinn síðan Höskuldarhellir því að útburðurinn hafðist þar við.
- Þessi útburður gerði lundamönnum og sláttumönnum ónæði með væli sínu á nóttum, einkum þó þegar gekk á með illviðri. Þá heyrðist útburðarvælið frá hellinum langt að.
- Sögn Gísla Lárussonar í Stakkagerði
Jarðeignir
Áður fyrr var eyjunum skipt upp milli jarða á Heimaey. Elliðaey gat borið 256 sauði, eða sextán kindur per jörð, þar sem sextán jarðir höfðu aðgang að Elliðaey.
- Kornhóll (Garðurinn)
- Miðhús
- Gjábakki (2 býli)
- Presthús (2 býli)
- Oddstaðir (2 býli)
- Búastaðir (2 býli)
- Stóragerði
- Norðurgarður (2 býli)
- Steinsstaðir
- Þorlaugargerði (2 býli)
Heimildir
- Sögur og sagnir úr Vestmannaeyjum.
- Aðalskipulag Vestmannaeyja, 2004-2014, 4. tillaga (22/10/2004)
Ellirey - Gengið við á gömlum og nýjum lundaveiðistöðum
Skráð af Pétri Guðjónssyni frá Oddsstöðum og síðar Kirkjubæ.
Okkur Þórarni Sigurðssyni rafvirkjameistara, með meiru, kom saman um það, að gaman væri að fara dagstund út í Ellirey, ganga um eyna og færa inn á blað hina ýmsu lundaveiðistaði, bæði gamla og nýja. Svo kom að því, að ákveðið var að fara skyldi einn laugardag eftir hádegi,enda var veðrið mjög gott, norðangola og ládauður sjór.
Farið var með m/b Lat, VE 10 skipstjóri að sjálfsögðu Sigurður Sigurðsson (Diddi frá Svanhóli), eigandi bátsins og formaður Ellireyjarfélagsins.
Þegar komið var út fyrir hafnargarða, var haldið laust sunnan við Ellireyjartanga, sem er syðsti oddi á eynni. Þegar komið er fyrir tangana, er haldið í norður, austan við Suður- og Norður-Búr vegna þess, að norðan við Búrið er stór blindflúð, sem er að vísu upp úr á fjöru, en sést ekki á flóði nema í brimi. Þessi flúð er hið eina, sem forðast þarf þegar sjóleiðin er farin kringum Ellirey. Þá er haldið vestur,sunnan við mjög stóran klettadrang eða sker, sem heitir Hlein, og myndar hún mjótt sund við eyna.
Að austan eru þrjár uppgöngur. Sú syðsta er syðst á flánni og er aðaluppgangan. Þar út frá er haft ból, svo að í góðu leiði er hægt að hafa bátinn festan við það og í land. Þarf þá enginn maður að vera í bátnum, og svo var í þetta sinn.
Um það bil fyrir miðri flánni er kór, sem kallaður er Lundakór. Þar var báturinn, sem sótti lundann, alltaf afgreiddur áður fyrr, og hefur kórinn sennnilega fengið nafn af því. Nú er þessi staður ekki notaður nema um fjöru, enda er um flóð mjög gott að afgreiða bát norður á nefinu og mun styttri burður, ef um flutning er að ræða. Af nefinu er haldið upp í rétt, þar sem leiðinni er skipt, hvort sem borið er upp eða niður, og hefur svo verið í langan tíma. Áður en réttin var flutt, en það mun hafa verið um 1925, var þessi staður kallaður Skarð. Réttin var áður við Suður-Búr, en vetrarsjórinn jafnaði hana vanalega við jörðu.
Þá er að ganga sólarsinnis með brúnum. Þegar komið er um 80 metra suður af réttinni, myndast dálítið nef. Þar er Norður-staðurinn á hamrinum, áttin rétt austan við Bjarnarey. Þetta var mjög góður staður, áður en réttin var flutt. Áfram er haldið. Uppi af miðri Austururð er stór steinn, sem er laus við bergið að ofanverðu, en hefur aðeins setu að neðan, svo að maður skilur ekki, að hann skuli ekki hafa hrapað niður. Þessi staður er nefndur „Við körtuna“. Áttin er suðaustankaldi.
Áfram er haldið suður með hamrinum, þar til hann endar. Þá tekur við annar hamar, sem liggur í austur, og austast er góður lundastaður, sem nefndur er Hrafnajaðar eða Hafnarjaðar. Þar þarf vindstaðan að vera mjög norðlæg eða standa norðan við Norður-Búr. Niður undan staðnum er hellir, sem heitir Teistuhellir. Þar hafa teistur verpt. Hægt er að komast í hellinn bæði austan og vestan frá um stórstraumsfjöru.
Héðan er haldið í suður eftir hamri, sem nær suður að Suður-Búrum og heitir Réttarhamar. Undir honum er urð, sem heitir Réttarurð. Nöfnin eru sennilega frá þeim tíma, er réttin var syðst í urðinni vestan við Suður-Búr, enda stutt að ná í grjót í urðina. Á Réttarhamrinum er enginn lundastaður nema syðst, þar sem myndast smánef. Var stundum setið þar í sunnan-suðaustangolu, en veiði var aldrei mikil.
Á Suður-Búrum eru tveir staðir. Uppi á Há-Búrum er smáhaus, og niður undan honum er flá, sem setið var á og háfurinn lá eftir. Þarna veiddist oft sæmilega vel. Áttin er suðaustankaldi. Hinn staðurinn er neðst norðan megin. Þar er smápallur, sem setið er á, horft er í vestur, en háfurinn liggur í norður. Þarna veiddist aldrei mikið. Áttin er suðaustangola. Suður-Búrum hallar frá austri til vesturs. Að vestan er grasi gróin brekka, sem heitir Búrabrekka. Svo er önnur brekka, sem hallar frá vestri til austurs. Er þetta mikið flæmi, sem nær frá Hólum eða Hausum, sem eru upp af Hrafnajaðri, og upp að Stóra-Bunka og alla leið að suðurbrún. Þetta heitir Langihryggur. Þar sem þessar brekkur mætast, myndast skarð. Var oft setið syðst í skarðinu, þrír að austan og tveir að vestan. Þarna veiddist aldrei mikið. Fuglinn hætti svo fljótt að fljúga. Áttin suðaustangola.
Í Langahrygg, uppi af syðstu brún Réttarhamars, var oft setið. Þar voru útbúnar setur,og voru þar vanalega þrír menn, hver uppi af öðrum. Aldrei var mikil veiði á þessum stað. Áttin suðaustangola.
Á Norður-Búrum er enginn lundastaður, enda er gróður enginn. Að austan er þverhnípt standberg, og verpir þar nokkuð mikið af svartfugli. Að vestan er hallandi brekka alla leið niður að Réttarurð. Er hallinn sennilega um 45 gráður, en þó sæmilega gengur. Efni bergsins er móberg.