Ritverk Árna Árnasonar/Hannes Jónsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 14. ágúst 2013 kl. 16:38 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 14. ágúst 2013 kl. 16:38 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''''<big>Kynning.</big>''''' '''Hannes Jónsson''' lóðs, bóndi á Miðhúsum, fæddist 21. nóvember 1852 og lést 31. júlí 1937. <br> Faðir hans var [[Jón Hannesson (Ný...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Kynning.

Hannes Jónsson lóðs, bóndi á Miðhúsum, fæddist 21. nóvember 1852 og lést 31. júlí 1937.
Faðir hans var Jón Hannesson tómthúsmaður í Nýjakastala, frá Langholti í Meðallandi, f. 1820. Jón drukknaði 21. október 1853 af skipinu ,,Najaden“ í hákarlaferð.
Móðir Hannesar var Margrét Jónsdóttir frá Núpi undir Eyjafjöllum. Hún var tvígift og var Jón Hannesson seinni maður hennar, en fyrri var Jón Gíslason sjómaður í Tómthúsi (1845), en hann fórst líka í hákarlaferð með Morten Ericsen 1847.
Barn Margrétar og Jóns Gíslasonar var Sesselja, kona Jóns í Gvendarhúsi Jónssonar, en börn Margrétar og Jóns Hannessonar voru Hannes lóðs og Jóhanna kona Guðmundar á Fögruvöllum Guðmundssonar.

Kona Hannesar var Margrét dóttir Brynjólfs bónda í Norðurgarði Halldórssonar. Þau giftu sig 16. október 1880, voru þá bæði 28 ára.

Börn Hannesar og Margrétar voru:
1. Jóhannes kvæntur Guðrúnu Jónsdóttur.
2. Jórunn, varð kona Magnúsar Guðmundssonar.
3. Hjörtrós, Rósa, varð fyrri kona Tómasar Guðjónssonar, Sjólyst.
Er mikil ætt frá þessu fólki komin.

Úr fórum Árna Árnasonar símritara:
Bjargveiðimannatal.

Hannes var meðalhár, rösklega þrekinn mjög og sterkur, léttur á fæti og glaðlyndur.
Hann varð fljótt sjómaður, aðeins 11 ára, en varð formaður um tvítugt. Góður sjómaður, glöggur og gætinn, og harðduglegur alla ævi og skipaður lóðs um vorið 1895 og gegndi til dauðadags.
Við lundaveiðar var Hannes frá barnæsku. Henti hann það áfall að hrapa fyrir brún, en netið festist þar á nibbu lengst niðri í bjarginu, gjörsamlega ókleifu, en á óskiljanlegan hátt komst hann óafvitandi upp í brekku aftur, lamaður og ósjálfbjarga. Beið þessa aldrei fullar bætur, mjög skjálfhentur æ síðar og gat vart skrifað.
Hannes var gerður að heiðursborgara eyjanna, mætur og mikill maður í hverju starfi, þ.á.m. orðlagður veiðimaður lunda með gömlu veiðiaðferðunum, – með netum og greflum.

Önnur umfjöllun á Heimaslóð: Hannes Jónsson


Úr fórum Árna Árnasonar, efnisyfirlit


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Eyjar og úteyjalíf – Úrval verka Árna Árnasonar símritara frá Grund. Sögufélag Vestmannaeyja í samstarfi við Safnahús Vestmannaeyja 2012.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.