Ritverk Árna Árnasonar/Magnús Magnússon (Vesturhúsum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 14. ágúst 2013 kl. 21:17 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 14. ágúst 2013 kl. 21:17 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''''<big>Kynning.</big>''''' '''Magnús Magnússon''' trésmíðameistari frá Vesturhúsum fæddist 12. september 1905 og lést 26. maí 1978.<br> Foreldrar hans voru [[Magnús...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Kynning.

Magnús Magnússon trésmíðameistari frá Vesturhúsum fæddist 12. september 1905 og lést 26. maí 1978.
Foreldrar hans voru Magnús Guðmundsson bóndi og formaður á Vesturhúsum, f. 27. júní 1872, d. 24. apríl 1955, og kona hans Jórunn Hannesdóttir húsfreyja, f. 30. september 1879, d. 24. janúar 1962.

Magnús var menntaður húsasmiður og húsgagnasmiður. Hann var mjög virkur húsameistari. Eitt af fyrstu og stærstu byggingunum, sem hann ábyrgðist var Hraðfrystistöðin.
Hann var einn af stofnendum Smiðs h.f. og var meistari að þeim byggingum, sem fyrirtækið annaðist. Má þar nefna Sjúkrahúsið, Útvegsbankahúsið (nú Íslandsbankinn) við Kirkjuveg, hluta af Ísfélagsbyggingunum, turnbygginguna við Landakirkju, viðbyggingu við Barnaskólann.

Kona Magnúsar, (1. nóvember 1930), var Kristín Ásmundsdóttir húsfreyja, f. 24. ágúst 1908, d. 9. júlí 1998.
Þau bjuggu m.a. á Brekastíg 6, Helgafellsbraut 7, í Sunnudal, á Stóru-Heiði, en lengst á Ásavegi 27.

Börn Magnúsar og Kristínar:
1. Helgi Jón, f. 20. febrúar 1934, kvæntur Unni Tómasdóttur.
2. Ása Emma, f. 22. júní 1939, d. 13. apríl 1986, gift Guðmundi Loftssyni.
3. Petra, f. 13. október 1945, gift Þorkeli Þorsteinssyni.

Úr fórum Árna Árnasonar símritara:
Bjargveiðimannatal.

Magnús er maður allhár vexti, dökkhærður og frekar ljós yfirlitum. Hann er fremur rösklega vaxinn, meðalmaður að kröftum, en fylginn sér og vel snar í hreyfingum. Hann er skapléttur, ræðinn og skemmtilegur í sínum hóp, vinhollur og góður félagi.
Veiðimaður er Magnús allgóður ennþá, en hefir tapað í leikni vegna þjálfunarskorts hin síðari ár. Hann hefir aðallega verið að veiðum í Álsey og var uppáhaldsstaður hans til veiða svonefnd „Lendarflá“, sem er á suðaustur hábrún eyjarinnar.
Magnús er trésmíðameistari að iðn, á alls kyns húsasmíðar afhaldinn og eftirsóttur. Hann hefir verið töluvert við bjargferðir til eggja og fugla og getið sér hið besta orð í hvers konar aðsókn þeirra nytja.

Önnur umfjöllun á Heimaslóð: Magnús Magnússon (Vesturhúsum)


Úr fórum Árna Árnasonar, efnisyfirlit


Heimildir