Jóhannes H. Long
Jóhannes H. Jóhannsson Long fæddist 18. ágúst 1894 í Firði í á Seyðisfirði og lést 7. mars 1948 í flugslysi á leið frá Vestmannaeyjum til Reykjavíkur. Hann bjó í Vöruhúsinu við Skólaveg 2 en þar starfrækti hann verslun ásamt Georg Gíslasyni, einnig starfaði hann sem verkstjóri.
Kona hans var Bergþóra Ástrós Árnadóttir fædd 13. sept. 1888 í Vestmannaeyjum, d. 17. okt. 1969 í Reykjavík. Börn þeirra voru:
- Árni Theodór verslunarmaður f.13. apríl 1920 d. 4.okt 1979
- Anna Hulda, f. 2.okt. 1923
- Ólafur f, 16. febr. 1926 d. 23. okt. 1996
- Jóhanna Dóra, f.19. júní 1928
- Lárus Garðar málari og verkstjóri, f. 22. mars 1931 d. 13.maí 1999.
Heimildir
- Gunnlaugur Haraldsson. Longætt II. Þjóðsaga: Reykjavík, 1998.