Arnþór Helgason

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 11. júní 2025 kl. 15:47 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 11. júní 2025 kl. 15:47 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Arnþór Helgason''' deildarstjóri Blindarabókasafns Íslands, formaður og síðan framkvæmdastjóri Öryrkjabandalagsins, tónlistarmaður, rithöfundur, þáttagerðamaður, blaðamaður, kennari, vináttusendiherra, fæddist 5. apríl 1952.<br> Foreldrar hans voru Helgi Benediktsson athafnamaður, kaupmaður, útgerðarmaður, hótelrekandi, f. 3. desember 1899, d. 8. apríl 1971, og kona hans Guðrún Stefánsdóttir frá Sk...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Arnþór Helgason deildarstjóri Blindarabókasafns Íslands, formaður og síðan framkvæmdastjóri Öryrkjabandalagsins, tónlistarmaður, rithöfundur, þáttagerðamaður, blaðamaður, kennari, vináttusendiherra, fæddist 5. apríl 1952.
Foreldrar hans voru Helgi Benediktsson athafnamaður, kaupmaður, útgerðarmaður, hótelrekandi, f. 3. desember 1899, d. 8. apríl 1971, og kona hans Guðrún Stefánsdóttir frá Skuld, húsfreyja, f. 30. júní 1908, d. 13. ágúst 2009.

Börn Guðrúnar og Helga:
1. Stefán Helgason útgerðarstjóri, f. 16. maí 1929, d. 30. apríl 2000.
2. Sigtryggur Helgason viðskiptafræðingur, framkvæmdastjóri, forstjóri í Reykjavík, f. 5. september 1930, d. 14. september 2012.
3. Guðmundur Helgason útvarpsvirki, f. 12. maí 1932, d. 15. maí 1953.
4. Páll Helgason ferðamálafrömuður, f. 14. júní 1933.
5. Helgi Helgason nemi, f. 31. október 1938, d. 28. ágúst 1960.
6. Guðrún Helgadóttir húsfreyja, f. 16. febrúar 1943, d. 9. júlí 2022.
7. Arnþór Helgason framkvæmdastjóri, tónlistarmaður, rithöfundur, vináttusendiherra, f. 5. apríl 1952.
8. Gísli Helgason tónlistarmaður, hljóðmeistari, f. 5. apríl 1952.

Þau Elín giftu sig, eignuðust ekki börn saman, en hún á eitt barn. Þau búa á Seltjarnarnesi.

I. Kona Arnþórs er Elín Árnadóttir úr Rvk, húsfreyja, kennari, f. 29. mars 1950. Foreldrar hennar Árni Jónsson, f. 21. febrúar 1925, d. 20. febrúar 2006, og Sólveig Eggerz Pétursdóttir, f. 29. maí 1925, d. 16. mars 2016.
Barn Elínar:
1. Árni Birgisson, f. 13. maí 1970.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.