Bylgja Dögg Guðjónsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 28. júlí 2024 kl. 11:44 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 28. júlí 2024 kl. 11:44 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Bylgja Dögg Guðjónsdóttir“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Bylgja Dögg Guðjónsdóttir, húsfreyja fæddist 29. mars 1967.
Foreldrar hennar Guðjón Stefánsson frá Hólatungu við Hólagötu 7, húsasmíðameistari, f. 7. janúar 1936, d. 27. júlí 2022, og kona hans Erna Tómasdóttir frá Efra-Hvoli við Brekastíg 7c, húsfreyja, f. 29. desember 1937, d. 24. desember 1994.

Börn Ernu og Guðjóns:
1. Tómas Hrafn Guðjónsson verslunarstjóri, f. 2. desember 1957 á Efra-Hvoli. Fyrrum kona hans Harpa Gísladóttir. Unnusta hans Anna Jóna Guðmundsdóttir.
2. Rósa Elísabet Guðjónsdóttir stuðningsfulltrúi, f. 26. júlí 1959. Maður hennar er Guðjón Hjörleifsson.
3. Guðjón Örn Guðjónsson vélvirki, f. 28. ágúst 1961. Kona hans Jóhanna Kristín Gunnlaugsdóttir.
4. Sóley Guðbjörg Guðjónsdóttir starfsmaður á hóteli, f. 20. nóvember 1963.
5. Bylgja Dögg Guðjónsdóttir húsfreyja, f. 29. mars 1967. Maður hennar Óskar Þór Kristjánsson.
6. Stefán Orri Guðjónsson vélvirki, f. 5. júní 1969. Barnsmóðir Rósa Ólafsdóttir. Kona hans Bára Ingólfsdóttir.

Þau Óskar Þór giftu sig, eignuðust þrjú börn. Þau búa við Höfðaveg 31 .

I. Maður Bylgju Daggar er Óskar Þór Kristjánsson, f. 12. september 1965.
Börn þeirra:
1. Kristján Valur Óskarsson, f. 23. desember 1994 í Eyjum.
2. Birgir Davíð Óskarsson, f. 21. september 1996 í Eyjum.
3. Birgitta Dögg Óskarsdóttir, f. 14. september 1998 í Eyjum.



Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.