Bára Ingólfsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Bára Ingólfsdóttir, húsfreyja, sjúkraliði fæddist 22. maí 1966.
Foreldrar hennar Ingólfur Bárðarson kjötiðnaðarmeistari á Selfossi, f. 20. ágúst 1934 í Hvolhreppi, Rang., d. 25. júní 2019, og kona hans Lúlla María Ólafsdóttir, húsfreyja, f. 22. júní 1934 í Keflavík, d. 24. apríl 2019.

Þau Valur giftu sig 1995, eignuðust þrjú börn. Þau skildu.
Þau Stefán Orri giftu sig, hafa ekki eignast börn saman, en Bára á þrjú börn frá fyrra hjónabandi.

I. Maður Báru, skildu, er Valur Bogason, líffræðingur, f. 8. ágúst 1965.
Börn þeirra:
1. Bylgja Sif Valsdóttir, húsfreyja, f. 11. febrúar 1993 í Rvk. Sambúðarmaður hennar Magnús Sigurðsson.
2. Hafþór Valsson, sjómaður, f. 2. júní 1996 í Rvk.
3. Ægir Freyr Valsson, vélstjóri, f. 13. mars 2004.

II. Maður Báru er Stefán Orri Guðjónsson, vélvirki, f. 5. júní 1969.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.