Stefán Orri Guðjónsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Stefán Orri Guðjónsson, vélvirki fæddist 5. júní 1969 í Eyjum.
Foreldrar hans Guðjón Stefánsson frá Hólatungu við Hólagötu 7, húsasmíðameistari, f. 7. janúar 1936, d. 27. júlí 2022, og kona hans Erna Tómasdóttir frá Efra-Hvoli við Brekastíg 7c, húsfreyja, f. 29. desember 1937, d. 24. desember 1994.

Börn Ernu og Guðjóns:
1. Tómas Hrafn Guðjónsson verslunarstjóri, f. 2. desember 1957 á Efra-Hvoli. Fyrrum kona hans Harpa Gísladóttir. Unnusta hans Anna Jóna Guðmundsdóttir.
2. Rósa Elísabet Guðjónsdóttir stuðningsfulltrúi, f. 26. júlí 1959. Maður hennar er Guðjón Hjörleifsson.
3. Guðjón Örn Guðjónsson vélvirki, f. 28. ágúst 1961. Kona hans Jóhanna Kristín Gunnlaugsdóttir.
4. Sóley Guðbjörg Guðjónsdóttir starfsmaður á hóteli, f. 20. nóvember 1963.
5. Bylgja Dögg Guðjónsdóttir húsfreyja, f. 29. mars 1967. Maður hennar Óskar Þór Kristjánsson.
6. Stefán Orri Guðjónsson vélvirki, f. 5. júní 1969. Barnsmóðir Rósa Ólafsdóttir. Kona hans Bára Ingólfsdóttir.

Stefán eignaðist barn með Rósu 1992.
Þau Bára giftu sig, hafa ekki eignast börn. Þau búa við Hólagötu 7.

I. Barnsmóðir Stefáns Orra er Rósa Ólafsdóttir, f. 21. janúar 1971.
Barn þeirra:
1. Guðjón Már Stefánsson, f. 8. júlí 1992 í Eyjum.

II. Kona Stefáns Orra er Bára Ingólfsdóttir, húsfreyja, sjúkraliði, f. 22. maí 1966.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.