Stórhöfði
Mynd:Storhofdi ornefnakort.PNG Stórhöfði er 122 metra hár móbergsstapi sem myndar syðsta tangann á Heimaey. Höfðinn myndaðist í gosi undir jökli fyrir um 5-10 þúsund árum, og er samtengdur Heimaey um mjóa flá sem heitir Aur, en hann gengur til norðurs frá stórhöfða og myndar þar Brimurð að austan og Vík og Klauf að vestan. Sunnan við Vík eru tóttaleifar eftir fiskikrær er nefnast Erlendarkrær. Ef haldið er áfram rangsælis hringinn í kringum höfðann má finna Sölvaflá, Valshilluhamar, Napa, Fjósin, Hvannstóð, Hánef, Ketilsker, Kaplapyttir, Grásteinn, Lambhilla, Hellutá, Súlukrókur, Höfðahellir og loks er Garðsendi.
Vitinn
Fyrsti vitinn í Stórhöfða var byggður árið 1906 að frumkvæði þilskipaformanna, en þeir höfðu mikla þörf fyrir vita á þessum stað. Á þessum tíma voru fáir vitar á Íslandi, enda hafði þeirra ekki talist þörf fram að því. Vitinn var lágreist steinsteypt hús sem byggt var úr efni sem tekið var úr Höfðavík.
Fyrsti vitavörður í Stórhöfða var Guðmundur Ögmundsson, en árið 1910 tók nýr vitavörður við og hefur sama fjölskylda séð um vitann og veðurstöðina síðan þá.
Enginn vegur var út í Stórhöfða þá, en troðinn vegur lá út í höfðann. Árið 1920 sótti vitavörður um það til bæjarstjórnar að gerður yrði vegur þangað suður. Bæjarstjórn baðst þess að ríkið sæi um gerð vegarins og var hluti samnings sem gerður var að bærinn sæi um viðhald á veginum. Þegar að vegurinn var loks gerður var hann kallaður þjóðvegur, enda eini þjóðvegurinn í Vestmannaeyjum á þessum tíma.
Byrjað var að stunda veðurathugannir í Stórhöfða árið 1921.
Veðurfar
Mynd:Vindros storhofdi.PNG Á Stórhöfða er veðurstöð sem fræg er fyrir afleit veðurskilyrði, enda er stöðin talin ein sú vindasamasta í Evrópu. Þar hafa vindar mælst allt að 119 hnútar, eða um 61 metrar á sekúndu, og ölduhæð hefur mælst allt að 30 metrar.
Lífríki
Bjargfuglar
Áætlað er að um 700.000 lundar eiga heima í Stórhöfða
Sporðdrekar
Einstök tegund sporðdreka býr í Stórhöfða....
Heimildir
- Bjarmar yfir björgum, Gunnhildur Hrólfsdóttir
- Sjómannadagsblaðið 1999,