Anna Sigríður Scheving

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 30. maí 2023 kl. 11:45 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 30. maí 2023 kl. 11:45 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Anna Sigríður Scheving“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Anna Sigríður Scheving húsfreyja fæddist 11. október 1901 á Steinsstöðum og lést 30. júlí 1975.
Foreldrar hennar voru Sveinn Pálsson Scheving frá Görðum í Reynishverfi í Mýrdal, sjómaður, hreppstjóri, síðar lögreglumaður, f. 8. mars 1962, d. 3. ágúst 1943, og kona hans Kristólína Bergsteinsdóttir frá Tjörnum u. V.-Eyjafjöllum, húsfreyja, f. 7. júní 1868, d. 8. september 1941.

Börn Kristólínu og Sveins:
1. Anna Sigríður Scheving, f. 16. nóvember 1895 á Fitjarmýri, d. 3. febrúar 1897.
2. Bergsteinn Scheving, f. 6. mars 1897, d. 22. mars 1897.
3. Guðjón, f. 11. september 1898, d. 9. október 1974.
4. Anna Sigríður, f. 11. október 1901, d. 30. júlí 1975. Maður hennar Sigurjón Hansson.
5. Páll, f. 21. janúar 1904, d. 15. apríl 1990.
6. Sigurður, f. 9. apríl 1910, d. 10. nóvember 1977.

Anna var með foreldrum sínum.
Þau Sigurjón giftu sig 1924, eignuðust fimm börn. Þau bjuggu á Hjalla við Vestmannabraut 57, í Haga við Heimagötu 11, á Eyjarhólum við Hásteinsveg 20, en síðast á Brekkustíg 6 í Reykjavík.
Anna lést 1975 og Sigurjón 1994.

I. Maður Önnu, (17. maí 1924), var Sigurjón Hansson sjómaður, verkamaður, f. 14. febrúar 1902 (pr.þj.bók 23. febrúar), d. 6. maí 1994.
Börn þeirra:
1. Sveinn Scheving Sigurjónsson, f. 19. júní 1924 á Hjalla, d. 17. nóvember 1942.
2. Hans Ragnar Sigurjónsson skipstjóri, útgerðarmaður í Reykjavík, f. 16. júní 1927 á Hjalla, d. 30 desember 2013.
3. Anna Hólmfríður Sigurjónsdóttir húsfreyja, verslunar- og skólastarfsmaður, f. 19. febrúar 1930 á Hjalla, d. 29. október 2020.
4. Þráinn Scheving Sigurjónsson endurskoðandi, f. 13. október 1940 á Eyjarhólum. Kona hans Ruth Fjældsted.
5. Sveinn Scheving Sigurjónsson bifreiðastjóri, f. 25. júlí 1942 Sjh. Kona hans Kristín Björk Pétursdóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.