Leifur Erlendsson (Giljum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 6. október 2022 kl. 12:08 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 6. október 2022 kl. 12:08 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Leifur Kristinn Erlendsson''' frá Giljum í Hvolhreppi, þjónn fæddist þar 12. júlí 1908 og lést 20. október 1995. <br> Foreldrar hans voru Erlendur Jónsson frá Arngeirsstöðum í Fljótshlíð, bóndi, trésmiður, f. 10. mars 1865, d. 9. október 1917, og kona hans Jóhanna Einarsdóttir frá Hallgeirsey í A.-Landeyjum, húsfreyja, f. 7. mars 1879, d. 26. mars 1959. 1. Ólafur Erlendsson s...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Leifur Kristinn Erlendsson frá Giljum í Hvolhreppi, þjónn fæddist þar 12. júlí 1908 og lést 20. október 1995.
Foreldrar hans voru Erlendur Jónsson frá Arngeirsstöðum í Fljótshlíð, bóndi, trésmiður, f. 10. mars 1865, d. 9. október 1917, og kona hans Jóhanna Einarsdóttir frá Hallgeirsey í A.-Landeyjum, húsfreyja, f. 7. mars 1879, d. 26. mars 1959.

1. Ólafur Erlendsson sjómaður, kyndari, háseti, f. 25. mars 1897, fórst í Halaveðrinu 8. febrúar 1925.
2. Guðrún Erlendsdóttir húsfreyja í Norðurgarði í Mýrdal og í Sælundi í Vík þar, f. 4. júní 1900, d. 6. janúar 1980. Maður hennar Jón Guðmundsson.
3. Haraldur Elías Erlendsson sjómaður, f. 11. janúar 1902, d. 4. nóvember 1958.
4. Jón Erlendsson sjómaður, veitingamaður, f. 16. apríl 1903, d. 30. maí 1980.
5. Erlendur Erlendsson trésmiður, veitingamaður á Röðli, f. 6. september 1906, d. 14. desember 1958.
6. Leifur Kristinn Erlendsson þjónn, f. 12. júlí 1908, d. 20. október 1995. Kona hans Jóhanna Sighvatsdóttir.
7. Þuríður Einarbjörg Erlendsdóttir verslunarmaður í Reykjavík, f. 8. febrúar 1914, d. 13. september 1983. Maður hennar Börge, danskrar ættar.
8. Einar Sigurður Erlendsson leigubifreiðastjóri, síðast í Hafnarfirði, f. 22. október 1915, d. 26. október 1995. Kona hans Ingibjörg Þorsteinsdóttir.
9. Erlendur Jónsson Erlendsson sjómaður, bifreiðastjóri í Reykjavík, f. 5. október 1917, d. 4. júní 1996. Kona hans Sigríður Hannesdóttir.

Leifur var með foreldrum sínum, en faðir hans lést, er Leifur var á tíunda árinu. Hann flutti með móður sinni til Eyja 1918 og bjó hjá henni á Vegbergi við Skólaveg 32 1920.
Hann varð þjónn.
Þau Jóhanna giftu sig, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu við Bergþórugötu 37.
Jóhanna lést 1990 og Leifur 1995.

I. Kona Leifs var Jóhanna Sigurbjörg Sighvatsdóttir húsfreyja, f. 6. nóvember 1911, d. 22. nóvember 1990. Foreldrar hennar voru Sighvatur Gunnlaugsson lausamaður á Karlskála í Helgustaðahreppi, S.-Múl. 1920, f. 5. apríl 1877, d. 15. febrúar 1953 og Svanhildur Hektorsdóttir vinnukona þar 1920, f. 8. september 1873, d. 26. apríl 1943.
Börn þeirra:
1. Erlendur Óli Leifsson, býr Vestanhafs, f. 15. desember 1932.
2. Soffía Katla Leifsdóttir, býr Vestanhafs, f. 9. febrúar 1938.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.