Margrét Albertsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 25. ágúst 2022 kl. 10:50 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 25. ágúst 2022 kl. 10:50 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Margrét Albertsdóttir''' frá Eiði á Langanesi, húsfreyja fæddist þar 8. október 1878 og lést 24. ágúst 1955. <br> Foreldrar hennar voru Albert Jón Finnsson bóndi, f. 21. október 1849, d. 7. mars 1906, og kona hans Guðrún ''Soffía'' Eymundsdóttir húsfreyja, f. 7. nóvember 1852, d. 17. ágúst 1919.<br> Þau Einar giftu sig 1896, eignuðust fimm börn, en fyrsta barn þeirra dó nýfætt. Þau bjuggu í Nýjabæ í Skeggjastaðasókn í N.-Múl. 1901,...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Margrét Albertsdóttir frá Eiði á Langanesi, húsfreyja fæddist þar 8. október 1878 og lést 24. ágúst 1955.
Foreldrar hennar voru Albert Jón Finnsson bóndi, f. 21. október 1849, d. 7. mars 1906, og kona hans Guðrún Soffía Eymundsdóttir húsfreyja, f. 7. nóvember 1852, d. 17. ágúst 1919.

Þau Einar giftu sig 1896, eignuðust fimm börn, en fyrsta barn þeirra dó nýfætt. Þau bjuggu í Nýjabæ í Skeggjastaðasókn í N.-Múl. 1901, í Viðvík í Bakkafirði þar 1910.
Þau fluttu til Eyja 1919 með þrjú börn, bjuggu á Gilsbakka 1920, fluttu til Viðvíkur 1923, en til Reykjavíkur 1935. Þau bjuggu síðast á Laugarnesvegi 64.
Einar lést 1947 og Margrét 1955.

I. Maður Margrétar, (16. júní 1896), var Einar Friðsteinn Jóhannesson bóndi, verkamaður, f. 5. desember 1867, d. 23. september 1947.
Börn þeirra:
1. Jóhann Júlíus Einarsson, f. 5. janúar 1896, d. 28. maí 1897.
2. Þórunn Soffía Einarsdóttir húsfreyja í Uppsölum, f. 17. apríl 1898, d. 20. nóvember 1970.
3. Jóhann Júlíus Einarsson sjómaður, útgerðarmaður á Siglufirði, f. 15. maí 1901, drukknaði 29. september 1941.
4. Albert Steinþór Einarsson sjómaður í Viðvík, N.-Múl., f. 12. september 1906, d. 7. desember 1926.
5. Kristján Jóhannes Einarsson húsasmíðameistari í Reykjavík, f. 8. maí 1916, d. 21. maí 2000.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.
  • Manntöl.
  • Morgunblaðið 26. maí 2000. Minning Kristjáns Einarssonar.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.