Margrét Albertsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Margrét Albertsdóttir frá Eiði á Langanesi, húsfreyja fæddist þar 8. október 1878 og lést 24. ágúst 1955.
Foreldrar hennar voru Albert Jón Finnsson bóndi, f. 21. október 1849, d. 7. mars 1906, og kona hans Guðrún Soffía Eymundsdóttir húsfreyja, f. 7. nóvember 1852, d. 17. ágúst 1919.

Börn Soffíu og Jóns í Eyjum:
1. Margrét Albertsdóttir húsfreyja, f. 8. október 1878, d. 24. ágúst 1955.
2. Steinþór Albertsson, verkamaður, f. 18. janúar 1885, d. 13. apríl 1955.
3. Þorbjörg Albertsdóttir vinnukona í Stakkahlíð 1910, síðar húsfreyja í Höfnum á Reykjanesi, f. 9. október 1890, d. 14. ágúst 1968.
Systir Guðrúnar Soffíu var
1. Kristjana Ágústa Eymundsdóttir húsfreyja á Hól, kona sr. Jes A. Gíslasonar og
2. Sigurlín Jónína Eymundsdóttir, sem var á Hól 1910, f. 12. ágúst 1867, d. 22. mars 1937.

Þau Einar giftu sig 1896, eignuðust fimm börn, en fyrsta barn þeirra dó á fyrsta ári sínu. Þau bjuggu í Nýjabæ í Skeggjastaðasókn í N.-Múl. 1901, í Viðvík í Bakkafirði þar 1910.
Þau fluttu til Eyja 1919 með þrjú börn, bjuggu á Gilsbakka 1920, fluttu til Viðvíkur 1923, en til Reykjavíkur 1935. Þau bjuggu síðast á Laugarnesvegi 64.
Einar lést 1947 og Margrét 1955.

I. Maður Margrétar, (16. júní 1896), var Einar Friðsteinn Jóhannesson bóndi, verkamaður, f. 5. desember 1867, d. 23. september 1947.
Börn þeirra:
1. Jóhann Júlíus Einarsson, f. 5. janúar 1896, d. 28. maí 1897.
2. Þórunn Soffía Einarsdóttir húsfreyja í Uppsölum, f. 17. apríl 1898, d. 20. nóvember 1970.
3. Jóhann Júlíus Einarsson sjómaður, útgerðarmaður á Siglufirði, f. 15. maí 1901, drukknaði 29. september 1941.
4. Albert Steinþór Einarsson sjómaður í Viðvík, N.-Múl., f. 12. september 1906, d. 7. desember 1926.
5. Kristján Jóhannes Einarsson húsasmíðameistari í Reykjavík, f. 8. maí 1916, d. 21. maí 2000.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.
  • Manntöl.
  • Morgunblaðið 26. maí 2000. Minning Kristjáns Einarssonar.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.