Guðlaug Ólafsdóttir (Hvanneyri)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 10. nóvember 2021 kl. 10:10 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 10. nóvember 2021 kl. 10:10 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: thumb|150px|''Guðlaug Ólafsdóttir. '''Guðlaug Ólafsdóttir''' frá Hvanneyri við Vestmannabraut 60, húsfreyja fæddist 2. dese...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Guðlaug Ólafsdóttir.

Guðlaug Ólafsdóttir frá Hvanneyri við Vestmannabraut 60, húsfreyja fæddist 2. desember 1942.
Foreldrar hennar voru Ólafur Ólafsson skipstjóri á Létti, f. 5. desember 1900, d. 8. ágúst 1978, og kona hans Helga Hansdóttir húsfreyja, 27. maí 1904, d. 27. febrúar 1966.

Börn Helgu og Ólafs:
1. Hans Ólafsson vélvirki, vélstjóri í Hafnarfirði, f. 4. október 1933 í Reykjavík, d. 13. maí 1990.
2. Ólafur Ólafsson, f. 17. október 1939 á Ásum við Skólaveg 47.
3. Guðlaug Ólafsdóttir, f. 2. desember 1942 á Ásum við Skólaveg 47.
4. Andvana drengur, f. 24. desember 1944 á Ásum við Skólaveg 47.
5. Oddný Ólafsdóttir, f. 20. desember 1949 á Hvanneyri við Vestmannabraut 60.

Guðlaug var með foreldrum sínum í æsku.
Hún varð 4. bekkjar gagnfræðingur í Gagnfræðaskólanum 1959, nam við Húsmæðraskóla Reykjavíkur 1959-1960, tók póstmannapróf 1976. Hún lærir nú silfursmíði.
Guðlaug vann hjá Pósti og síma í nokkur ár, vann við netafellingar hjá Dala-Rafni og vann hjá leikskólanum á Sóla frá 1989 til starfsloka 67 ára.
Þau Steingrímur giftu sig 1962, eignuðust fjögur börn. Þau bjuggu í fyrstu á Löndum við Landagötu 11, byggðu húsið í Austurgerði 13, bjuggu þar við Gos 1973, síðan á Smáragötu 13, en síðast á Dverghamri 9.
Steingrímur lést 2017.
Guðlaug býr á Dverghamri 9.

I. Maður Guðlaugar, (8. desember 1962), var Steingrímur Dalmann Sigurðsson frá Dalabæ í Úlfsdölum í Eyjafj.s., skipstjóri, skipaeftirlitsmaður, f. 4. janúar 1942 á Siglufirði, d. 19. maí 2017.
Börn þeirra:
1. Sigurður Ólafur Steingrímsson stýrimaður, f. 28. október 1962. Fyrrum sambúðarkona Ingunn Björg Sigurðardóttir.
2. Helgi Þór Steingrímsson vélfræðingur, býr í Danmörku og Kópavogi. Hann rekur fjölmennt fyrirtæki í Danmörku, f. 30. janúar 1966. Kona hans Ulla Schjöring.
3. Sædís Steingrímsdóttir lyfjatæknir í Reykjavík, f. 17. nóvember 1970. Maður hennar Sigurður Ómar Ólafsson.
4. Sigurrós Steingrímsdóttir sölumaður í Reykjavík, f. 12. september 1980. Maður hennar Bogi Hreinsson.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Guðlaug.
  • Íbúaskrá Vestmannaeyja 1972.
  • Íslendingabók.is.
  • Morgunblaðið 27. maí 2017. Minning Steingríms.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.