Sigríður Haraldsdóttir (Saltabergi)
Sigríður Haraldsdóttir húsfreyja að Saltabergi fæddist 29. júní 1916 að Strandbergi og lést af slysförum 17. febrúar 1993.
Foreldrar hennar voru Haraldur Jónasson formaður og síðar fiskimatsmaður í Eyjum, f. 30. júní 1888, d. 27. desember 1941 og og kona hans Ágústa Friðsteinsdóttir húsfreyja, f. 13. ágúst1891, d. 10. ágúst 1977.
„Húsfreyjan á Saltabergi hafði snemma mikið að gera. Börnin urðu sex; Ágústa, sem Súlli gekk í föðurstað, Margrét, Sigríður, Haraldur Geir, Anna Svala og Svava Björk. Súlli var góður bjargveiðimaður og kom það í hlut húsmóðurinnar að taka við fuglinum og reyta. Auk þessa höfðu þau mikil garðlönd sem einnig kom í hennar hlut og barnanna að sjá um meðan á veiðitímanum stóð. “ (Úr minningargrein).
I. Sigríður eignaðist barn með Guðmundi Óskari Ólafssyni Lárussonar, f. 14. júní 1914, d. 18. mars 1981.
Barn þeirra er:
1. Ágústa Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 5. janúar 1936, kona Guðna Pálssonar frá Þingholti.
II. Maður Sigríðar var, (1942), Hlöðver Johnsen, f. 11. febrúar 1919, d. 10. júlí 1997.
Börn Sigríðar og Hlöðvers eru:
2. Margrét, fædd 7. nóvember 1942.
3. Sigríður, fædd 28. júlí 1948.
4. Anna Svala, f. 3. janúar 1955.
5. Haraldur Geir, f. 24. júlí 1956.
6. Svava Björk, f. 7. ágúst 1959.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Garður.is.
- Morgunblaðið 27. febrúar 1993. Minning. Sigfús J. Johnsen.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.