Elín Sigurðardóttir (Ólafshúsum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 17. nóvember 2014 kl. 21:58 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 17. nóvember 2014 kl. 21:58 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Elín Sigurðardóttir húsfreyja í Ólafshúsum, fæddist í Búðarhóls-Austurhjáleigu í A-Landeyjum 5. desember 1865, d. 26. febr. 1906 í Eyjum.
Foreldrar hennar voru Sigríður Pétursdóttir húsfreyja, síðar í Ólafshúsum og maður hennar Sigurður Sigurðsson bóndi í Kúfhóli í A-Landeyjum. (Sjá Sigríði).

Þau Sigríður Pétursdóttir og Sigurður Sigurðsson voru einnig foreldrar:
1. Steinunnar Sigurðardóttur húsfreyju á Þingeyri.
2. Sigurðar Sigurðssonar formanns í Frydendal, sambýlismanns Önnu Sigríðar Árnadóttur móður Johnsensbræðra.
3. Sigríðar Sigurðardóttur húsfreyju í Lambhaga, konu Guðmundar Guðmundssonar sjómanns í Lambhaga.
4. Þau voru og foreldrar Vigfúsar fósturföður Þorsteins Þ. Víglundssonar.

Maður Elínar var Jón Bergur eldri útvegsbóndi í Ólafshúsum. Elín var fyrri kona hans.
Börn þeirra voru:
1. Sigurlín, f. 17. júlí 1896, d. 1923. Hún var kona Ólafs Ingileifssonar.
2. Jón Bergur yngri, f. 1900.
3. Guðfinna Jónsdóttir, f. 1902, d. 24. febrúar 1994. Hún var kona Ólafs Ingileifssonar.
4. Guðni á Vegamótum, f. 1903, d. 9. febrúar 1944.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson, Ragnar Böðvarsson o.fl. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Pers.