Franski spítalinn
Franski spítalinn var byggður árið 1906 af Frökkum og stendur við Kirkjuveg 20. Nú er húsið nefnt Gamli spítalinn og nafnið oft stytt í „Gamló“ enda stendur það nafn á skilti á húsinu.
Spítali reis ekki í Eyjum fyrr en 1907. Franskt líknarfélag reisti Franska spítalann. Hann var eingöngu ætlaður frönskum sjómönnum sem þá voru mjög fjölmennir á miðunum við landið. Aðrir nutu þó góðs af. Spítalinn var rekinn frá 1. jan - 30. júní ár hvert. Árið 1920 hóf bæjarsjóður að reka Franska spítalann með Frökkum. Sjúkrahúsrekstur hætti í húsinu 1928 og var þá húsið notað sem íbúðarhús og einnig var daggæsla barna í útihúsi um tíma
Helstu atriði í eigenda- og íbúasögu
- Sigurður Á. Gunnarsson kaupir húsið 1928
- Jósúa Teitsson
- Óskar Jósúason og Jósebína Grímsdóttir og fjölsk
- Ester Óskarsdóttir og fjölskylda
- Ása Bergmundsdóttir í útihúsi
- Engilbert Jóhannsson og Arnbjörg Magnúsdóttir
- Steinunn Jóhannsdóttir
Myndir
Heimildir
- Kirkjuvegur. Verkefni unnið af þátttakendum á námskeiðinu Húsin í götunni. Vestmannaeyjar, 2004.