Óskar Jósúason

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Óskar Jósúason.

Óskar Jósúason fæddist 22. október 1915 og lést 10. ágúst 1987. Hann var húsasmíðameistari og bjó ásamt fjölskyldu sinni í Gamla spítalanum við Kirkjuveg.

Frekari umfjöllun

Óskar Jósúason húsgagna- og húsasmíðameistari fæddist 22. október 1915 á Gilsbakka í Snóksdal í Dal. og lést 10. ágúst 1987.
Foreldrar hans voru hjónin Jósúa Teitsson þá í húsmennsku á Gilsbakka, síðar húsgagnasmiður og húsgagnabólstari í Eyjum, f. 21. ágúst 1883 á Bæ í Miðdölum, d. 29. október 1947, og kona hans Steinunn Jónasdóttir, þá í húsmennsku, kona hans, síðar húsfreyja í Eyjum, f. 28. febrúar 1885 í Skörðum í Miðdölum, d. 21. janúar 1971.



ctr
Jósúa, Steinunn og Óskar.

Óskar var með foreldrum sínum í æsku, var með þeim í vinnumennsku þeirra á Reykhólum í A.-Barð. 1920, flutti með þeim til Reykjavíkur og síðan til Eyja 1923. Þau bjuggu á Lögbergi við Vestmannabraut 56a 1927, í Ásnesi við Skólaveg 7 1930.
Óskar fór til smíðanáms, stundaði síðan iðn sína. Hann var einn af stofnendum Smiðs hf. og vann þar. Óskar vann ásamt sonum sínum Hallgrími og Elíasi Fannari við byggingu Barnaskólans á Borðeyri í Hrútafirði.
Þau Jósebína giftu sig 1939, eignuðust sex börn. Fyrsta barn þeirra fæddist í Reykjavík. Þau fluttu til Eyja 1940, bjuggu í Sandprýði við Bárustíg 16B 1940, Árdal við Hilmisgötu 5 1941 og 1943, bjuggu, í Franska spítalanum við Kirkjuveg 20 1944 og síðan.
Óskar lést 1987 og Jósebína 1993.

I. Kona Óskars, (9. desember 1939), var Jósebína Grímsdóttir húsfreyja, f. 25. nóvember 1921, d. 28. desember 1993.
Börn þeirra:
1. Elías Fannar Óskarsson sjómaður, verkamaður, f. 21. júní 1939, d. 28. mars 1998. Kona hans Helga Sigtryggsdóttir.
2. Hallgrímur Óskarsson húsa- og húsgagnasmíðameistari, f. 7. júlí 1943 í Árdal. Kona hans Sólrún Sædís Sigurbjörnsdóttir.
3. Þórunn Ester Óskarsdóttir húsfreyja, f. 1. september 1941 í Árdal, d. 29. október 2008. Maður hennar Brynjar Karl Stefánsson, látinn.
4. Páll Róbert Óskarsson húsgagnasmíðameistari, f. 10. júní 1946 í Franska spítalanum, d. 13. október 2020. Kona hans Þuríður Margrét Georgsdóttir, látin.
5. Steinunn Ósk Óskarsdóttir matreiðslumaður, sjókona, f. 25. júlí 1950 í Franska spítalanum. Fyrrum maður hennar Gunnar Snorri Snorrason.
6. Jósúa Steinar Óskarsson vélvirkjameistari, f. 4. október 1952 í Franska spítalanum. Kona hans Kristín Eggertsdóttir, látin.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.