Smáeyjar

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 27. júlí 2005 kl. 14:52 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 27. júlí 2005 kl. 14:52 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Mynd:Smáeyjar kort.PNG Smáeyjar eru fjórar litlar eyjar ásamt fjölda smáskerja. Eyjarnar liggja rétt vestur af Stafsnesi og er Hani stærst.

Hæna liggur syðst af þeim og er hún 57 m há. Þar urðu miklar gróðurskemmdir 1990 þegar brimaði yfir eyjuna í stormi. Flestir lundar í eyjunni urðu þar með heimilislausir og var allri veiði hætt í kjölfarið.

Norður af Hænu liggur Hani. Á Hana er áberandi hóll er nefnist Hanahöfuð og ber hæst um 87 m. Graslendi þekur eyjuna að mestu.

Næst í röðinni er Hrauney. Ofan á eyjunni eru áberandi grýttir hamrar sem stingast úr graslendinu. Bæði í Hrauney og í Hana eru veiðikofar og dálítil lundatekja auk þess sem fé er haft á beit.

Grasleysa liggur vestan Hrauneyjar, hún er álíka há og Hæna. Á eyjunni sést ekki stingandi strá eins og nafnið gefur til kynna.

Smáeyjar, séðar frá Norðurgarði.