Grasleysa

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 30. júní 2005 kl. 14:27 eftir Smari (spjall | framlög) Útgáfa frá 30. júní 2005 kl. 14:27 eftir Smari (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Grasleysa er 40 m hár hraunstapi sem stendur norðvestan við Hrauney. Hún er nokkuð lítil ummáls og er með álíka hömrum umhverfis og Hæna. Einungis er hægt að komast upp í hana að vestanverðu þar sem hamrarnir lækka mikið. Að ofanverðu er eyjan flöt og þar verpir fýll og langvía. Nafn eyjunnar er engin tilviljun því þar sést ekki stingandi strá, þar sem að oft ganga öldur yfir eyjuna í vonskuveðri.