Guðni Steinar Sigurðsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 21. júlí 2025 kl. 14:48 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 21. júlí 2025 kl. 14:48 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Guðni Steinar Sigurðsson“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Guðni Steinar Sigurðsson tölvutæknir fæddist 26. júlí 1979.
Foreldrar hans Sigurður Ingi Ingólfsson, netagerðarmeistari, f. 28. janúar 1945, og kona hans Jóna Berg Andrésdóttir úr Rvk, húsfreyja, bókhaldari, útgerðarmaður, iðnrekandi, f. 5. janúar 1947.

Börn Jónu og Sigurðar:
1. Andrea Inga Sigurðardóttir sjúkraliði, forstöðumaður ræstingadeildar Fjölbrautarskóla Suðurlands á Selfossi, f. 30. september 1965 í Reykjavík. Fyrrum maður hennar Vilhjálmur Vilhjálmsson frá Burstafelli. Maður hennar Guðmundur Ágústsson.
2. Tryggvi Rúnar Sigurðsson sjómaður á Bergey VE, f. 18. apríl 1971 í Eyjum. Barnsmóðir hans Hulda Björt Magnúsdóttir.
3. Guðni Steinar Sigurðsson tölvutæknir, f. 26. júlí 1979 í Eyjum.

Guðni Steinar er ókvæntur og barnlaus.
Hann býr í Rvk.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.