Ingólfur Hansen
Ingólfur Valdimar Jógvan Hansen, sjómaður, skipstjóri, vélvirki fæddist 11. ágúst 1941.
Foreldrar hans Joen Edvard Jakob Hansen (Jógvan) frá Færeyjum, sjómaður, útgerðarmaður, afgreiðslumaður, f. 26. júní 1915, d. 17. september 2011, og kona hans Ester Hjálmarsdóttir Hansen, húsfreyja, forstöðumaður leikskóla, f. 18. júní 1922, d. 14. maí 2003.
Börn Esterar og Jógvans:
1. Ingólfur Valdimar Jógvan Hansen, f. 11. ágúst 1941. Kona hans María Björk Eiðsdóttir, látin.
2. Sonja Jógvan Hansen, f. 25. janúar 1944. Maður hennar Þórður Helgi Ólafsson.
3. Sædís Hansen, f. 25. september 1946. Maður hennar Svein Raastad.
4. Vigdís Hansen, f. 24. september 1951. Maður hennar Matthías Nóason.
5. Ágústína Hansen, f. 30. desember 1954 í Eyjum. Maður hennar Jóhann Salómon Andrésson.
6. Sigríður Petra Hansen, f. 20. maí 1959. Maður hennar Magnús Kristleifur Kristleifsson.
7. Hans Hjálmar Hansen, f. 7. janúar 1961. Kona hans Sigurborg Birgisdóttir.
Þau María Björg giftu sig, eignuðust tvö börn.
María Björk lést 2000.
Ingólfur býr í Garðabæ.
I. Kona Ingólfs var María Björk Eiðsdóttir, húsfreyja f. 3. maí 1940 í Rvk, d. 10. febrúar 2000. Foreldrar hennar Eiður Haraldsson, skósmiður, f. 26. júní 1914, d. 6. mars 1947, og Valgerður Magnúsdóttir, húsfreyja, f. 19. júlí 1916, d. 14. júlí 2006.
Börn þeirra:
1. Ester Birna Hansen, f. 31. maí 1977.
2. Valgerður Ósk Hansen, f. 19. janúar 1980.
Barn Maríu og stjúpbarn Ingólfs:
3. Reynir Harðarson, f. 2. október 1961.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
- Morgunblaðið. Minning Maríu Bjarkar.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.