Anna Sigríður Grímsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 15. ágúst 2024 kl. 10:43 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 15. ágúst 2024 kl. 10:43 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Anna Sigríður Grímsdóttir húsfreyja, deildarstjóri fæddist 20. september 1970.
Foreldrar hennar voru Grímur Magnússon frá Felli, sjómaður, vélstjóri, f. 19. apríl 1945 í Sandprýði, og kona hans María Ármannsdóttir frá Laufholti, húsfreyja, f. 21. mars 1953.

Börn Maríu og Gríms:
1. Anna Sigríður Grímsdóttir deildarstjóri hjá Póstinum, f. 20. desember 1970. Fyrrum maður hennar Sölvi Breiðfjörð Harðarson. Unnusti hennar Jónas Karl Sigurðsson.
2. Örlygur Helgi Grímsson sjómaður, vélstjóri, f. 16. júní 1981. Kona hans Kolbrún Stella Karlsdóttir.
3. Aldís Grímsdóttir ræstitæknir í Danmörku, f. 17. janúar 1983. Maður hennar Ragnar Michelsen.
4. Elva Dögg Grímsdóttir bókari á Akureyri, f. 28. mars 1984. Maður hennar Helgi Heiðar Jóhannesson.

Anna var með foreldrum sínum.
Hún er deildarstjóri hjá Póstinum á Stórhöfða í Rvk.
Þau Sölvi giftu sig, eignuðust tvö börn, en skildu.
Þau Jónas Karl giftu sig.
Anna býr í Kópavogi.

I. Maður Önnu Sigríðar, (16. júní 2000, skildu), er Sölvi Breiðfjörð Harðarson ráðgjafi, f. 14. febrúar 1970. Foreldrar hans Hörður Eiðsson úr Reykjavík, blikksmiður, starfsmaður Eimskips, f. 8. maí 1944, d. 18. apríl 2015, og kona hans Kolbrún Ólafsdóttir frá Hrísnesi á Barðaströnd, húsfreyja, f. 25. október 1944.
Börn þeirra:
1. Grímur Orri Sölvason sjómaður, f. 21. október 1992. Sambúðarkona hans Aníta Grétarsdóttir.
2. Sara Hlín Breiðfjörð Sölvadóttir, f. 15. janúar 1996. Sambúðarmaður hennar Alexander Hrafn Breiðfjörð Kjartansson.

II. Maður Önnu Sigríðar er Jónas Karl Sigurðsson, f. 9. maí 1963. Foreldrar hans Sigurður Jens Benjamínsson, f. 19. febrúar 1943, d. 11. febrúar 2022, og Guðlaug Ingibjörg Albertsdóttir, f. 19. september 1942, d. 3. nóvember 1964.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.