Jóhanna Markúsína Matthíasdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 3. desember 2023 kl. 13:52 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 3. desember 2023 kl. 13:52 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Jóhanna Markúsína Matthíasdóttir“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Jóhanna Markúsína Matthíasdóttir húsfreyja í Borgarnesi og Reykjavík fæddist 29. júlí 1858 í Landlyst og lést 4. september 1900.
Foreldrar hennar voru Matthías Markússon trésmiður, f. 3. júní 1910 í Dýrafirði, d. 5. maí 1888, og kona hans Sólveig Pálsdóttir ljósmóðir, f. 8. október 1821 á Búastöðum, d. 24. maí 1886.

Börn Sólveigar og Matthíasar:
1. Matthildur Pálína Matthíasdóttir saumakona, f. 22. apríl 1845 í Danskagarði, d. 10. október 1918, ógift og barnlaus.
2. Markús Matthíasson, f. 3. ágúst 1846 í Pétursborg, d. 3. ágúst úr ginklofa.
3. Jón Matthíasson, f. 23. júlí 1847 í Sæmundarhjalli, d. 2. ágúst 1847 úr ginklofa.
4. Karólína Guðrún Matthíasdóttir saumakona í Kaupmannahöfn, f. 16. september 1848 í Landlyst, d. 21. janúar 1942, óg, bl.
5. María Guðrún Matthíasdóttir, f. 30. október 1851 í Landlyst, d. 8. nóvember 1851 „af Barnaveikindum“.
6. María Kristín Matthíasdóttir húsfreyja á Akureyri, f. 20. desember 1852 í Landlyst, d. 4. febrúar 1920.
7. Sigríður Matthíasdóttir ráðskona í Danmörku, óg., bl., f. 9. desember 1855 í Landlyst, d. 25. desember 1940.
8. Jóhanna Markúsína Matthíasdóttir húsfreyja í Borgarnesi og Reykjavík, f. 29. júlí 1858 í Landlyst, d. 4. september 1900.
9. Matthías Matthíasson kaupmaður í Reykjavík, f. 24. ágúst 1861 í Landlyst, d. 28. febrúar 1937.
10. Andvana sveinbarn fætt 7. júlí 1863 í Landlyst.
11. Jensína Björg Matthíasdóttir, f. 10. október 1864 í Landlyst, d. 25. október 1928.

Jóhanna var með foreldrum sínum, í Landlyst og flutti með þeim til Reykjavíkur 1868. Hún var hjá þeim í Efstaholti 1870, var hjá Maríu systur sinni á Akureyri 1880.
Þau Þorsteinn giftu sig, bjuggu í Syðstabæ í Stærri-Áskógssókn í Eyjafirði 1890, bjuggu þar með þrem börnum sínum.
Jóhanna lést 1900 og Þorsteinn 1902.

I. Maður Jóhönnu var Þorsteinn Einarsson blikkari, fyrrum bóndi á Brú og Möðrudal, f. 11. febrúar 1853 á Brú á Jökuldal, d. 14. ágúst 1902. Foreldrar hans voru Einar Einarsson bóndi á Brú, f. 21. maí 1802, d. 26. maí 1881, og síðari kona hans Anna Stefánsdóttir frá Gilsárvelli, húsfreyja, f. 1820, d. 8. júlí 1878.
Börn þeirra:
1. Jakobína Þorsteinsdóttir, f. um 1878 í Víðihólssókn í N.-Múl.
2. Matthías Thorsteinsson, síðast í Bandaríkunum, f. 31. ágúst 1887, d. 5. apríl 1950.
3. Solveig Þorsteinsdóttir húsfreyja í Winnipeg, f. 10. júní 1889 að Syðstabæ, d. 19. maí 1954.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.