Oddur Guðlaugsson (Lyngfelli)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 14. febrúar 2026 kl. 14:54 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 14. febrúar 2026 kl. 14:54 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Oddur Árni Guðlaugsson í Lyngfelli, sjómaður, eggjabóndi fæddist þar 21. mars 1945 og lést 18. júní 1977.
Móðir hans var Árný Svala Kristjánsdóttir, en kjörforeldrar hans voru Guðlaugur Guttormsson bóndi í Lyngfelli, f. 7. nóvember 1908 á Hafrafelli í N.-Múl., d. 6. apríl 1996, og kona hans og móðumóðir Odds Guðbjörg Elín Jónsdóttir húsfreyja, f. 9. ágúst 1907 í Reykjavík, d. 17. janúar 1964 í Eyjum.

Oddur var með kjörforeldrum sínum.
Hann varð sjómaður og stundaði búskap með kjörforeldrum sínum.
Oddur var tvíkvæntur og hafði eignast sex börn.
Hann lést 1977.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.