Fjóla Einarsdóttir (Breiðabliki)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 6. desember 2023 kl. 20:04 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 6. desember 2023 kl. 20:04 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Fjóla Einarsdóttir frá Breiðabliki, húsfreyja, tækniteiknari á Álftanesi fæddist 2. mars 1946 á Breiðabliki og lést 20. janúar 1993.
Foreldrar hennar voru Einar Sölvi Illugason vélvirkjameistari, f. 1. apríl 1911 á Brekku, d. 28. ágúst 1972, og kona hans Steinunn Rósa Ísleifsdóttir frá Nýjahúsi, húsfreyja, f. þar 7. júní 1912, d. 13. júlí 1994 á Sólvangi í Hafnarfirði.

Börn Rósu og Einars:
1. Marlaug Einarsdóttir húsfreyja, verslunarkona, kaupmaður, frumkvöðull, síðast í Hafnarfirði, f. 18. júlí 1933 á Reynifelli, d. 17. desember 2006.
2. Ragna Jóhanna Einarsdóttir húsfreyja, síðast í Hafnarfirði, f. 1. febrúar 1935, á Heimagötu 30 við skírn, d. 19. september 1992.
3. Haraldur Grétar Einarsson, f. 21. ágúst 1937 á Hjalteyri, d. 6. desember 1937.
4. Laufey Þóra Einarsdóttir bankaritari í Hafnarfirði, f. 22. júlí 1939 á Urðavegi 8, Steinum, d. 19. júlí 1994.
5. Baldvin Einarsson véltæknifræðingur í Danmörku, f. 27. maí 1941 í Steinum við Urðaveg 8, látinn.
6. Fjóla Einarsdóttir húsfreyja á Álftanesi, f. 2. mars 1946 á Breiðabliki, d. 20. janúar 1993.
7. Einar Vignir Einarsson verkamaður, síðast í Eyjum, f. 17. nóvember 1949 á Breiðabliki, d. 7. nóvember 1966 af slysförum.

Fjóla var með foreldrum sínum í æsku.
Hún varð 3. bekkjar gagnfræðingur í Gagnfræðaskólanum 1962, lærði tækniteiknun.
Þau Bergur bjuggu í Danmörku 1969-1973, meðan Bergur var þar við nám.
Fjóla söng í Álftaneskórnum.
Þau Guðjón Bergur giftu sig 1966, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu á Helgafellsbraut 1, síðast á Norðurtúni 22 í Garðabæ (á Álftanesi).

I. Maður Fjólu, (26. desember 1966), er Guðjón Bergur Ólafsson véltæknifræðingur, f. 13. ágúst 1945.
Börn þeirra:
1. Einar Bergsson tölvuverkfræðingur, viðskiptafræðingur í Milano á Ítalíu, f. 10. júní 1967 í Eyjum. Fyrri kona hans Elísabet Sigurðardóttir, dóttir Ástu Traustadóttur Jónssonar. Kona hans Mariangela Colberta.
2. Ólafur Bergsson tölvufræðingur, f. 17. mars 1973 í Danmörku. Kona hans Hafdís Sigursteinsdóttir


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.