Sigurður Guðnason (stýrimaður)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 5. september 2022 kl. 16:16 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 5. september 2022 kl. 16:16 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Sigurður Guðnason (stýrimaður)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Sigurður Guðnason er fæddur 3. desember 1931. Hann býr að Herjólfsgötu 15. Sigurður var sonur Guðna Grímssonar.

Óskar Kárason samdi formannavísu um Sigurð:

Ísleifinn elzta hreyfir
ýturinn Siggi nýtur
skarpur son Guðna garpur,
gnið sækir býsna iðinn.
Öldu lítt óttast gnöldur,
ungur þó stýri lungi,
meiðurinn valinn veiða
vaskur fær aflann kaskur.

Heimildir

  • Óskar Kárason. Formannavísur II. Vestmannaeyjum, 1956.

Frekari umfjöllun

Sigurður Guðnason sjómaður, skipstjóri, stýrimaður, netagerðarmaður fæddist 3. desember 1931 á Sunnuhvoli og lést 6. júlí 2014 á Sjúkrahúsinu.
Foreldrar hans voru Guðni Grímsson skipstjóri, útgerðarmaður, f. 15. janúar 1904, d. 9. maí 1996, og kona hans Þórunn Lovísa Sigurðardóttir húsfreyja, f. 30. ágúst 1908, d. 18. júlí 1979.

Börn Lovísu og Guðna:
1. Kristín Inga Guðnadóttir öryrki, f. 24. mars 1928, d. 30. desember 1967.
2. Sigurður Guðnason sjómaður, skipstjóri, stýrimaður, netagerðarmaður, f. 3. desember 1931, d. 6. júlí 2014. Kona hans Lilja Ársælsdóttir.

Sigurður var með foreldrum sínum í æsku.
Hann lauk fiskimannaprófi í Stýrimannaskólanum í Reykjavík 1953.
Sigurður var sjómaður, gerði út Maggý VE 111 með föður sínum, var þar skipstjóri um skeið. Þeir hættu útgerð hennar 1965. Hann var skipstjóri á gamla Ísleifi, 2. stýrimaður á Ísleifi VE frá 1967-1974. Þá varð hann netamaður á netaverkstæðum í Eyjum til ársins 1995.
Hann var skáti í Faxa og félagi í Félagi eldri borgara í Eyjum.
Þau Lilja giftu sig 1954, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu í fyrstu á Fögrubrekku við Vestmannabraut 68, síðar á Herjólfsgötu 15.
Sigurður lést 2014.

I. Kona Sigurðar, (3. desember 1954), er Guðný Lilja Ársælsdóttir frá Fögrubrekku, húsfreyja, f. 22. apríl 1933.
Börn þeirra:
1. Laufey Sigurðardóttir sjúkraliði á Sambýlinu í 26 ár, f. 4. júní 1955 á Fögrubrekku. Maður hennar Gunnar Rafn Einarsson.
3. Lovísa Sigurðardóttir móttökuritari í Reykjavík, f. 7. febrúar 1959. Maður hennar Guðmundur Sv. Hermannsson.
4. Guðni Sigurðsson skrifstofustjóri hjá Bíla- og vélaverkstæðinu Nethamri, f. 9. apríl 1963. Kona hans Olga Sædís Bjarnadóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.