Bergsteinn Theodór Þórarinsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 8. ágúst 2022 kl. 17:50 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 8. ágúst 2022 kl. 17:50 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Viglundur færði Bergsteinn Theódór Þórarinsson á Bergsteinn Theodór Þórarinsson yfir tilvísun)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Bergsteinn Theódór Þórarinsson.

Bergsteinn Theódór Þórarinsson (Kúti) sjómaður fæddist 1. nóvember 1933 í Hólmgarði og lést 12. ágúst 1991.
Foreldrar hans voru Þórarinn Magnússon Sigurður Thorlacius Magnússon frá Langa-Hvammi, sjómaður, f. 27. nóvember 1906, fórst í sjó 29. janúar 1940, og kona hans Anna Halldórsdóttir húsfreyja, verkakona, f. 28. október 1906 á Bryggju í Biskupstungum, d. 29. desember 1992.

Systir Bergsteins Theódórs var
1. Guðrún Ársæl Þórarinsdóttir, f. 15. janúar 1932 á Litlu-Grund, d. 15. febrúar 2021.

Bergsteinn Theódór (Kúti) var með foreldrum sínum á Stapa, en faðir hans fórst í sjó, er Kúti var á sjöunda árinu.
Hann var með móður sinni, varð sjómaður.
Bergsteinn Theódór slasaðist illa á togveiðum, missti handlegg. Hann eignaðist trillu undir það síðasta, sem hann nefndi eftir vini sínum, Sævari í Gröf.
Hann var ókvæntur, bjó síðast hjá móður sinni á Kanastöðum við Hásteinsveg 22.
Hann lést 1991.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.