Grænahlíð 11
Hús Högna Sigurðarsonar og Önnu Sigurðardóttur; bæði frá Vatnsdal. Lóðarleigusamningur var samþykktur í bæjarstjórn 16. júní 1960 og undirritaður 3. febrúar 1965. Þau byrjuðu að byggja á Vatnsdalstúninu í júní 1961. Fluttu inn 14. ágúst 1967 með dótturina Sigríði, sem var fædd 5. september 1956.
Húsið fór undir hraun í gosinu 1973
Heimildir
- Friðrik Ásmundsson, Grænahlíð, samantekt unnin 2002.