Fjóla Sigurðardóttir (Hruna)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 10. apríl 2023 kl. 10:35 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 10. apríl 2023 kl. 10:35 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Fjóla Sigurðardóttir.

Fjóla Sigurðardóttir frá Hruna, húsfreyja í Reykjavík fæddist 17. ágúst 1928 og lést 8. nóvember 2013.
Foreldrar hennar voru Sigurður Þorleifsson verkamaður, f. 16. ágúst 1886 á Á á Síðu, V-Skaft., d. 15. maí 1969, og kona hans Margrét Vigdís Gunnlaugsdóttir húsfreyja, f. 6. janúar 1898 í Uppsalakoti á Svarfaðardal, Eyjafj.s., d. 19. júlí 1965.







ctr
Börnin í Hruna með foreldrum sínum.
Aftari röð frá vinstri (þrjú börn): Una, Sigríður og Gunnlaugur.
Fremri röð frá vinstri (sex börn og foreldrarnir): Eiríkur, Einara, Fjóla, Pálína, Rósa og Margrét.

Börn Margrétar og Sigurðar:
1. Gunnlaugur Sigurðsson sjómaður, f. 20. maí 1921 að Reynifelli við Vesturveg 15b, d. 29. nóv. 1963.
2. Sigríður Sigurðardóttir húsfreyja, f. í Nikhól við Hásteinsveg 22. júní 1922, d. 22. september 2004.
3. Una Guðrún Rósamunda Sigurðardóttir húsfreyja, f. í Nikhól 6. ágúst 1923, d. 30. apríl 1978.
4. Margrét Þorleifsdóttir Sigurðardóttir húsfreyja, f. 3. febr. 1924 í Sjávarborg við Sjómannasund, d. 26. janúar 2012.
5. Ármann Sigurðsson, f. 6. febrúar 1927 í Sjávarborg, d. 27. mars 1927.
6. Fjóla Sigurðardóttir húsfreyja, f. 17. ágúst 1928 í Hruna við Miðstræti, d. 8. nóvember 2013.
7. Pálína Sigurðardóttir húsfreyja, f. 22. okt. 1929 í Hruna.
8. Eiríkur Sigurðsson sjómaður, útgerðarmaður, verkamaður, bifreiðastjóri f. 31. jan. 1931 í Hruna, d. 28. nóvember 2007.
9. Oddný Sigurrós Sigurðardóttir (Rósa) húsfreyja, f. 1. okt. 1933 í Hruna, d. 25. febrúar 2013.
10. Einara Sigurðardóttir húsfreyja, f. 11. jan. 1936 í Hruna.
Barn Margrétar:
12. Pétur Sveinsson, f. 16. maí 1918 í Baldurshaga á Fáskrúðsfirði, bifreiðastjóri, síðast í Reykjavík, d. 8. september 1985.
Fósturbarn þeirra, dóttir Unu, er
13. Þorgerður Sigurvinsdóttir húsfreyja í Eyjum, síðar í Kópavogi, f. 8. október 1943.

Fjóla var með foreldrum sínum, en fluttist á unglingsárum til Gunnlaugs bróður síns að Miðgrund u. Eyjafjöllum, síðan til Reykjavíkur. Þar vann hún verslunarstörf og saumastörf allskonar. Hún var einnig í vistum við barnagæslu og heimilisstörf.
Þau Guðlaugur giftu sig 1954, bjuggu í Reykjavík, eignuðust fjögur börn.
Síðar vann Fjóla í 15 ár hjá Hótel Esju.
Hún lést 2013.

I. Maður Fjólu, (5. janúar 1954), var Guðlaugur Jónas Guðlaugsson bifreiðasmiður frá Dalvík, f. 10. maí 1931. Foreldrar hans voru Guðlaugur Jón Þorleifsson skipstjóri, f. 5. janúar 1894 að Upsum í Svarfaðardal, d. 31. mars 1979, og Andrea Kristjana Bessadóttir frá Siglufirði, húsfreyja, f. 5. maí 1893, d. 7. júlí 1932.
Börn Fjólu og Guðlaugs:
1. Sigríður Guðlaugsdóttir, f. 16. júlí 1953.
2. Guðlaugur Guðlaugsson, f. 21. júní 1956. Kona hans Guðrún Pétursdóttir.
3. Gunnar Guðlaugsson, f. 14. júlí 1959, d. 25. september 2018. Sambýliskona Anna Guðjónsdóttir.
4. Sveinbjörn Guðlaugsson, f. 15. október 1962. Barnsmóðir hans Helga Róbertsdóttir. Kona hans Sigurrós Anna Magnúsdóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.