Haraldur Kristjánsson (Heiðarbrún)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 13. desember 2016 kl. 13:13 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 13. desember 2016 kl. 13:13 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Haraldur Kristjánsson (Heiðarbrún)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit
Haraldur Kristjánsson.

Haraldur Kristjánsson frá Heiðarbrún, rakarameistari fæddist 22. febrúar 1924 á Heiðarbrún og lést 12. september 2002.
Foreldrar hans voru Kristján Jónsson frá Arngeirsstöðum í Fljótshlíð, trésmíðameistari, f. 13. mars 1882, d. 19. ágúst 1957, og kona hans Elín Oddsdóttir frá Ormskoti í Fljótshlíð, húsfreyja f. 27. janúar 1889, d. 19. mars 1965.

Börn Elínar og Kristjáns:
1. Óskar Kristjánsson, f. 27. janúar 1907 á Gilsbakka, d. 11. janúar 1908.
2. Óskar Kristjánsson, f. 17. apríl 1908 á Gilsbakka, d. 20. ágúst 1980.
3. Ólafur Ágúst Kristjánsson, f. 12. ágúst 1909 á Garðstöðum, d. 21. apríl 1989.
4. Oddgeir Kristjánsson, f. 16. nóvember 1911, d. 18. febrúar 1966.
5. Andvana stúlka, f. 3. október 1912 á Garðstöðum.
6. Laufey Sigríður Kristjánsdóttir, f. 30. desember 1913 á Heiðarbrún, d. 5. október 1994.
7. Jóna Margrét Kristjánsdóttir, f. 13. janúar 1915 á Heiðarbrún, d. 2. janúar 1971.
8. Friðrik Kristjánsson, f. 11. janúar 1916 á Heiðarbrún, d. 7. júlí 1916.
9. Klara Kristjánsdóttir, f. 8. júlí 1917 á Heiðarbrún, d. 23. janúar 1993.
10. Guðleif Hulda Kristjánsdóttir, f. 22. júlí 1918 á Heiðarbrún, d. 16. desember 1918.
11. Gísli Kristjánsson, f. 17. febrúar 1920 á Heiðarbrún, d. 26. febrúar 1995.
12. Kristbjörg Kristjánsdóttir, f. 8. apríl 1921 á Heiðarbrún, d. 24. nóvember 1999.
9. Klara Kristjánsdóttir, f. 8. júlí 1917 á Heiðarbrún, d. 23. janúar 1993.
10. Guðleif Hulda Kristjánsdóttir, f. 22. júlí 1918 á Heiðarbrún, d. 16. desember 1918.
11. Gísli Kristjánsson, f. 17. febrúar 1920 á Heiðarbrún, d. 26. febrúar 1995.
12. Kristbjörg Kristjánsdóttir, f. 8. apríl 1921 á Heiðarbrún, d. 24. nóvember 1999.
13. Haraldur Kristjánsson, f. 22. febrúar 1924 á Heiðarbrún, d. 12. september 2002.
14. Andvana drengur, f. 4. september 1927.
15. Lárus Kristjánsson, f. 28. ágúst 1929 á Heiðarbrún, d. 19. júlí 2012.
Sonur Kristjáns og hálfbróðir systkinanna var
16. Svanur Ingi Kristjánsson verslunarmaður, húsasmíðameistari, f. 9. febrúar 1922, d. 22. nóvember 2005.

Haraldur var með foreldrum sínum á Heiðarbrún 1930, á Breiðabólstað 1934, rakaranemi á Hásteinsvegi 31 1940, útskrifaðist frá Iðnskólanum í Reykjavík.
Hann var skráður kvæntur rakari á Heiðarvegi 34 með Jakobínu 1945.
Þau fluttu úr Eyjum til Reykjavíkur snemma eftir giftingu, eignuðust fjögur börn.
Haraldur var rakari á Vesturgötu 3 og síðan Vesturgötu 15 í 50 ár með Karli Jónssyni og Steingrími Færseth.
Haraldur var einn af stofnendum Lúðrasveitar Vestmannaeyja og söng með Karlakórnum Fóstbræðrum í hálfa öld.

Haraldur var tvíkvæntur.
I. Fyrri kona Haraldar, (31. maí 1944, skildu), var Jakobína Perla Kolka húsfreyja, talsímakona, skrifstofustjóri, f. 31. maí 1924.
Börn þeirra:
1. Björg Kolka Haraldsdóttir, f. 14. september 1944.
2. Margrét Kolka Haraldsdóttir, f. 13. nóvember 1948.
3. Ása Kolka Haraldsdóttir, f. 2. febrúar 1951.
4. Elín Perla Kolka Haraldsdóttir, f. 23. desember 1957.

II. Síðari Kona Haraldar var Svanfríður Jónsdóttir húsfreyja, f. 26. október 1932, d. 1. janúar 1998.


Heimildir

Morgunblaðið 20. september 2002. Minning.

  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.