„Ingibjörg Jónsdóttir (Suðurgarði)“: Munur á milli breytinga
m (Verndaði „Ingibjörg Jónsdóttir (Suðurgarði)“ ([edit=sysop] (ótiltekinn))) |
Ekkert breytingarágrip |

Lína 12: | Lína 12: | ||
Ingibjörg var með foreldrum sínum í æsku og vann þeim fram að giftingu sinni 1892.
| Ingibjörg var með foreldrum sínum í æsku og vann þeim fram að giftingu sinni 1892.

Þau Jón bjuggu á Kirkjulandi í A-Landeyjum 1893-1898 og í austurbænum í Hallgeirsey 1898-1903, en fluttust til Eyja á því ári með fjölskylduna. Þeim fylgdi Guðrún Bergsdóttir móðir Ingibjargar og Jón sonur hennar.
| Þau Jón fluttust til Eyja 1892 og voru tómthúsfólk í [[París]] í lok þess árs, bjuggu á Kirkjulandi í A-Landeyjum 1893-1898 og í austurbænum í Hallgeirsey 1898-1903, en fluttust til Eyja á því ári með fjölskylduna. Þeim fylgdi Guðrún Bergsdóttir móðir Ingibjargar og Jón sonur hennar.

Þau voru bændur í [[Svaðkot]]i, en byggðu síðar Suðurgarð, sem var kippkorn frá Svaðkotsbænum. Þar bjuggu þau síðan.
| Þau voru bændur í [[Svaðkot]]i, en byggðu síðar Suðurgarð, sem var kippkorn frá Svaðkotsbænum. Þar bjuggu þau síðan.

Jón lést 1946 og Ingibjörg 1953. | Jón lést 1946 og Ingibjörg 1953. |
Útgáfa síðunnar 20. júní 2015 kl. 19:55
Ingibjörg Jónsdóttir húsfreyja í Suðurgarði fæddist 20. janúar 1866 og lést 20. mars 1953.
Faðir Ingibjargar var Jón bóndi og formaður í Hallgeirsey, f. 2. október 1835, drukknaði við Eyjar 25. mars 1893, Brandsson bónda á Syðri-Úlfsstöðum, f. 1798 á Gaddstöðum á Rangárvöllum, d. 7. janúar 1865, Eiríkssonar bónda á Gaddstöðum og í Fróðholtshjáleigu á Rangárvöllum, skírður 26. október 1775, d. 1. júli 1833, Jónssonar og konu Eiríks (2. október 1794), Ingibjargar húsfreyju, f. 1760, d. 3. febrúar 1839, Þórarinsdóttur.
Móðir Jóns Brandssonar og kona Brands Eiríkssonar var Guðrún húsfreyja, f. 10. nóvember 1794, d. 23. október 1870, Jónsdóttir bónda á Rauðnefsstöðum á Rangárvöllum, skírður 22. apríl 1757, d. 13. desember 1824, Þorgilssonar og konu Jóns á Rauðnefsstöðum, Ingveldar húsfreyju, skírð 1. apríl 1762, d. 13. júlí 1834, Guðmundsdóttur.
Móðir Ingibjargar í Suðurgarði og kona Jóns Brandssonar var Guðrún húsfreyja í Hallgeirsey, síðar (frá 1903) í Svaðkoti, f. 30. nóvember 1832, d. 1913, Bergsdóttir vinnumanns í Drangshlíð, f. 13. febrúar 1811, Daníelssonar bónda í Miðeyjarhólmi, skírður 15. febrúar 1777, d. 22. apríl 1845, Bjarnasonar og konu Daníels, Guðnýjar Bergþórsdóttur, f. 1770.
Móðir Ingibjargar í Suðurgarði og barnsmóðir Bergs var Steinvör, síðar húsfreyja í Hallgeirsey, skírð 9. mars 1800, d. 21. september 1882 í Hallgeirsey, Guðmundsdóttir bónda í Strandarhjáleigu o.v., f. 1754 í Ketilhúshaga, d. 8. október 1829, Oddssonar, og konu Guðmundar, Guðrúnar húsfreyju, f. 1754, d. 16. nóvember 1830, Hallsdóttur.
Systkini Ingibjargar voru m.a.
1. Steinvör Guðrún Jónsdóttir húsfreyja í Nýjabæ.
2. Guðrún Guðný Jónsdóttir vinnukonu í Þorlaugargerði, f. 10. janúar 1873, d. 9. september 1957.
3. Jón Jónsson öryrki í Svaðkoti, síðar hjá Steinvöru í Nýjabæ, f. 28. maí 1878, d. 13. ágúst 1930.
Ingibjörg var með foreldrum sínum í æsku og vann þeim fram að giftingu sinni 1892.
Þau Jón fluttust til Eyja 1892 og voru tómthúsfólk í París í lok þess árs, bjuggu á Kirkjulandi í A-Landeyjum 1893-1898 og í austurbænum í Hallgeirsey 1898-1903, en fluttust til Eyja á því ári með fjölskylduna. Þeim fylgdi Guðrún Bergsdóttir móðir Ingibjargar og Jón sonur hennar.
Þau voru bændur í Svaðkoti, en byggðu síðar Suðurgarð, sem var kippkorn frá Svaðkotsbænum. Þar bjuggu þau síðan.
Jón lést 1946 og Ingibjörg 1953.
Maður Ingibjargar, (23. október 1892), var Jón Guðmundsson bóndi, f. 2. september 1868, d. 23. maí 1946.
Börn þeirra hér:
1. Jón Jóhann Jónsson stýrimaður í Hafnarfirði, f. 3. júlí 1893, d. 20. febrúar 1976.
2. Margrét Marta Jónsdóttir Johnsen húsfreyja í Suðurgarði, kaupkona, f. 5. mars 1895, d. 15. maí 1948.
3. Sigurgeir Jónsson rafvirki í Suðurgarði, f. 25. júní 1898, d. 30. maí 1935.
4. Guðrún Jónsdóttir (Þorlaugargerði)|Guðrún Jóhanna Jónsdóttir]] húsfreyja í Þorlaugargerði, f. 17. febrúar 1906, d. 16. ágúst 1953.
Sjá Blik 1967. Gott er með góðu fólki eftir sr. Þorstein Lúther Jónsson
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.