„Þórunn Anna Jóhanna Sigurðardóttir“: Munur á milli breytinga
Fara í flakk
Fara í leit
(Ný síða: '''Þórunn Anna Jóhanna Sigurðardóttir''' frá Nýborg fæddist 4. júní 1884 og drukknaði 16. maí 1901.<br> Foreldrar hennar voru [[Sigurður Sveinsson í Nýborg|Sigurðu...) |
m (Verndaði „Þórunn Anna Jóhanna Sigurðardóttir“ ([edit=sysop] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Núverandi breyting frá og með 10. maí 2015 kl. 13:31
Þórunn Anna Jóhanna Sigurðardóttir frá Nýborg fæddist 4. júní 1884 og drukknaði 16. maí 1901.
Foreldrar hennar voru Sigurður Sveinsson bóndi, útgerðarmaður og smiður í Nýborg, f. 28. júlí 1841, d. 11. maí 1929, og kona hans Þóranna Ingimundardóttir ljósmóðir frá Gjábakka, f. 16. janúar 1859 í Eyjum, d. 14. marz 1929.
Þórunn Anna Jóhanna var með foreldrum sínum frá fæðingu.
Hún lagði upp undan Eyjafjöllum með Fjallaskipinu Björgólfi 16. maí 1901. Skipið fórst í Beinakeldu suðaustur af Klettsnefi 16. maí 1901. Þar fórust 27 manns, en einum var bjargað.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Minningarrit. Páll Oddgeirsson. Vestmannaeyjum 1952.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.