„Þorbjörg Sigurðardóttir (Löndum)“: Munur á milli breytinga
Fara í flakk
Fara í leit
(Ný síða: '''Þorbjörg Sigurðardóttir''' húsfreyja á Löndum fæddist 1776 í Mýrdal og lést 16. mars 1855.<br> Þorbjörg var vinnukona í Presthúsum í Mýrdal 1801, húsfreyja ...) |
m (Verndaði „Þorbjörg Sigurðardóttir (Löndum)“ ([edit=sysop] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 6. febrúar 2015 kl. 18:33
Þorbjörg Sigurðardóttir húsfreyja á Löndum fæddist 1776 í Mýrdal og lést 16. mars 1855.
Þorbjörg var vinnukona í Presthúsum í Mýrdal 1801, húsfreyja á Löndum 1828-1836 með Bjarna og síðan með Narfa og var þar enn 1854.
Hún lést 1855.
I. Barnsfaðir Þorbjargar var Sveinn Guðmundsson, f. 1777.
Barn þeirra var
1. Jón Sveinsson sjómaður á Kirkjubæ, f. 1799, d. 29. október 1847.
II. Maður hennar, (18. júní 1823), var Bjarni Þórðarson tómthúsmaður á Löndum, f. 1765, d. 19. desember 1836.
Þau voru barnlaus.
III. Maður Þorbjargar var Narfi Jónsson sjómaður á Löndum, f. 1809, d. 17. febrúar 1860.
Þau voru barnlaus.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Prestþjónustubækur.
- Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.