„Margrét Ólafsdóttir (Kirkjubæ)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 11: Lína 11:
1. [[Eggert Guðmundur Ólafsson]], f. 1. nóvember 1855, d. 2. desember 1918 í Vesturheimi.

1. [[Eggert Guðmundur Ólafsson]], f. 1. nóvember 1855, d. 2. desember 1918 í Vesturheimi.

II. Barnsfaðir hennar að tveim börnum var [[Nicolai H. Thomsen]].

II. Barnsfaðir hennar að tveim börnum var [[Nikolai Heinrich Thomsen]].

Börn þeirra voru:

Börn þeirra voru:

2. Nikulás Nicolaison, f. 25. júní 1864. Hann var  í Götu 1867. Hann fluttist frá Götu til Kaupmannahafnar 1868.

2. Nikulás Thomsen, (Nikulás Nicolaison), f. 25. júní 1864. Hann var  í Götu 1867. Hann fluttist frá Götu til Kaupmannahafnar 1868.

3. Guðfinna Nikulásdóttir, f. 5. febrúar 1868. Var í Götu 1880, fermd 1882. Finnst ekki síðan.

3. Guðfinna Nikulásdóttir, f. 5. febrúar 1868. Var í Götu 1880, fermd 1882. Finnst ekki síðan.

{{Heimildir|
{{Heimildir|

Útgáfa síðunnar 14. ágúst 2014 kl. 19:54

Margrét Ólafsdóttir frá Kirkjubæ fæddist 9. október 1828 og lést 15. júní 1890.
Foreldrar hans voru Ólafur Guðmundsson bóndi á Kirkjubæ, f. 17. janúar 1797, d. 14. júlí 1869, og kona hans Helga Ólafsdóttir húsfreyja, f. 1793, d. 27. mars 1840.

Margrét var 12 ára með föður sínum og Ingveldi föðursystur sinni á Kirkjubæ 1840. Hún var 17 ára vinnukona hjá Magnúsi Austmann og Kristínu Einarsdóttur á Vilborgarstöðum 1845 og 22 ára hjá þeim í Nýjabæ 1850.
Þá var hún 28 ára þjónustustúlka hjá Kohl sýslumanni 1855. Hann var þá 41 árs og konulaus. Eggert Guðmundur fæddist síðla á því ári.
Hún var með föður sínum og barninu Eggert Guðmundi á Kirkjubæ 1860, ógift húskona í Götu með börnin Eggert Guðmund og Guðfinnu 1870, húsfreyja í Götu 1880, og þar var Eggert Guðmundur, sjómaður og fyrirvinna, og einnig var þar með henni Guðfinna dóttir hennar 12 ára.
Margrét lést 1890, niðursetningur í Stakkagerði.

I. Barnsfaðir Margrétar var lýstur Ólafur Gíslason frá Ottahúsi, bóndi á Gjábakka, f. 13. nóvember 1803, d. 4. júní 1855. Hann var látinn, þegar barnið fæddist. Alþýðutungur töldu, að Kohl sýslumaður væri faðirinn.
Barn þeirra var
1. Eggert Guðmundur Ólafsson, f. 1. nóvember 1855, d. 2. desember 1918 í Vesturheimi.

II. Barnsfaðir hennar að tveim börnum var Nikolai Heinrich Thomsen.

Heimildir