„Ingibjörg Þórðardóttir (Vilborgarstöðum)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''Ingibjörg Þórðardóttir''' vinnukona frá Vilborgarstöðum fæddist 1844 og lést 1. mars 1890.<br> Foreldrar hennar voru [[Þórður Einarsson (Vilborga...)
 
m (Verndaði „Ingibjörg Þórðardóttir (Vilborgarstöðum)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 9. maí 2014 kl. 11:16

Ingibjörg Þórðardóttir vinnukona frá Vilborgarstöðum fæddist 1844 og lést 1. mars 1890.
Foreldrar hennar voru Þórður Einarsson bóndi og kona hans Ástríður Jónsdóttir húsfreyja.

Ingibjörg var sýstir Guðrúnar Þórðardóttur húsfreyju í Vegg og Gróu Þórðardóttur húsfreyju í Hólshúsi.

Ingibjörg var með foreldrum sínum á Löndum 1850, á Vilborgarstöðum 1855. Hún var með ekkjunni móður sinni og systrum sínum Gróu og Guðrúnu þar 1860.
Hún var vinnukona á Vilborgarstöðum 1870 hjá Jóhönnu Gunnsteinsdóttur og Jóni Jónssyni , síðar búandi í Dölum.
Þá var hún vinnukona í Gvendarhúsi hjá Jóni og Sesselju 1880.
Ingibjörg lést 1890.

Hún var ógift og barnlaus.


Heimildir