„Guðrún Guðmundsdóttir (Steinshúsi)“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: '''Guðrún Guðmundsdóttir''' húsfreyja í Steinshúsi fæddist 1786 á Kanastöðum í A-Landeyjum og lést 16. febrúar 1829. <br> Foreldrar hennar voru [[Guðmundur Ólafs...) |
m (Verndaði „Guðrún Guðmundsdóttir (Steinshúsi)“ ([edit=sysop] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 1. mars 2014 kl. 19:30
Guðrún Guðmundsdóttir húsfreyja í Steinshúsi fæddist 1786 á Kanastöðum í A-Landeyjum og lést 16. febrúar 1829.
Foreldrar hennar voru Guðmundur Ólafsson bóndi í A-Landeyjum, en síðast á Kirkjubæ, f. 1785, d. 3. febrúar 1820 á Kirkjubæ, og fyrri kona hans Ingibjörg Jónsdóttir húsfreyja, ættuð úr Eyjum, f. 1763, d. 19. maí 1810.
Guðrún var með foreldrum sínum á Bryggjum 1801. Hún var vinnukona í Voðmúlastaðahjáleigu þar 1816.
Hún var á Búastöðum 1820 við fæðingu Þuríðar, húskona í Dölum 1823 og 1824, en var komin í Steinshús 1826 og varð bráðkvödd þar 1829.
I. Maður Guðrúnar var Steinn Guðmundsson tómthúsmaður í Steinshúsi, f. 1791, d. 1. janúar 1829.
Börn þeirra hér:
1. Þuríður Steinsdóttir, f. 14. nóvember 1820, d. 22. nóvember 1820 „af barnaveiki“, (mun vera ginklofi) .
2. Guðmundur Steinsson, f. 6. júní 1823, d. 17. júní 1823 „af barnaveikinni“, (mun vera ginklofi).
3. Þuríður Steinsdóttir, f. 11. júní 1824, d. 18. júní 1824 „af kæfandi sjúkdómi“ , (líklega stífkrampi, ginklofi).
4. Jónas Steinsson, f. 16. júlí 1826, d. 26. júlí 1826 úr „Barnaveiki“, (mun vera ginklofi).
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
- Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.