„Gísli Eyjólfsson (eldri)“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 16: | Lína 16: | ||
* Margrét Magnúsína, f.1906, d.1906. | * Margrét Magnúsína, f.1906, d.1906. | ||
Önnur umfjöllun á Heimaslóð: [[Ritverk Árna Árnasonar/Gísli Eyjólfsson (eldri)]] | |||
= Myndir = | |||
<Gallery> | <Gallery> | ||
Mynd:KG-mannamyndir 2941.jpg | Mynd:KG-mannamyndir 2941.jpg |
Útgáfa síðunnar 14. ágúst 2013 kl. 13:33
Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir aðra sem hafa borið nafnið „Gísli Eyjólfsson“
Gísli Eyjólfsson frá Búastöðum fæddist 17. apríl 1867 og lést 6. mars 1914. Foreldrar hans voru Eyjólfur Eiríksson bóndi og Jórunn Skúladóttir, hjón á Kirkjubæ.
Flutti til Vestmannaeyja 1869, með foreldrum sínum, sem settust að í Norðurbæ á Kirkjubæjum. Gísli varð bóndi á Eystri-Búastöðum, og áraskipaformaður. Annálaður fjallamaður, eins og bræður hans Guðjón á Kirkjubæ og Jóel á Sælundi.
Kona Gísla var Guðrún Magnúsdóttir, fædd 12.júlí 1865 í Berjanesi í V-Landeyjum, dáin á Búastöðum 24.sept. 1936. Þau giftust 14. maí 1894 og fengu þá byggingu fyrir jörðinni Eystri-Búastöðum. (Nyrðri-Búastöðum, eins og þau hétu áður en nýtt hús var byggt.)
Þau eignuðust fimm börn:
- Lovísa, f.1895 d.1979 í Vestmannaeyjum, kona Bryngeirs Torfasonar
- Eyjólfur f.1897 d.1995 í Reykjavík
- Jórunn, f.1899, d.1916 í Reykjavík
- Magnús, f.1904, d.1904
- Margrét Magnúsína, f.1906, d.1906.
Önnur umfjöllun á Heimaslóð: Ritverk Árna Árnasonar/Gísli Eyjólfsson (eldri)
Myndir
Heimildir
- Eyjar og úteyjalíf – Úrval verka Árna Árnasonar símritara frá Grund. Sögufélag Vestmannaeyja í samstarfi við Safnahús Vestmannaeyja 2012.
- Gísli Eyjólfsson frá Bessastöðum.