„Skálholt-yngra“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
(urðarvegur > urðavegur) |
||
Lína 1: | Lína 1: | ||
[[Mynd:Skalholt oskubill.jpg|thumb|250 px|Skálholt við Urðaveg]] | [[Mynd:Skalholt oskubill.jpg|thumb|250 px|Skálholt við Urðaveg]] | ||
[[Mynd:Skalholt.jpg|thumb|250 px|Skálholt-yngra]] | [[Mynd:Skalholt.jpg|thumb|250 px|Skálholt-yngra]] | ||
Húsið '''Skálholt''' - hið yngra - stóð við [[ | Húsið '''Skálholt''' - hið yngra - stóð við [[Urðavegur|Urðaveg]] 43. Það var stórt steinhús, með stórum kjallara, tveimur hæðum og risi. Listar kringum glugga hússins voru skrautlega steyptir, en hús- og kvistgaflar voru bogadregnir. | ||
Húsið reisti [[Gísli Magnússon]], útgerðarmaður, á árunum 1925-26 og kostaði það í kringum 280.000 kr, en það var himinhá upphæð á þeim tíma. Hann bjó í húsinu ásamt konu sinni [[Sigríður Einarsdóttir|Sigríði Einarsdóttur]] til ársins 1940 en þá missti hann eignina sökum heimskreppunnar miklu 1930-40. | Húsið reisti [[Gísli Magnússon]], útgerðarmaður, á árunum 1925-26 og kostaði það í kringum 280.000 kr, en það var himinhá upphæð á þeim tíma. Hann bjó í húsinu ásamt konu sinni [[Sigríður Einarsdóttir|Sigríði Einarsdóttur]] til ársins 1940 en þá missti hann eignina sökum heimskreppunnar miklu 1930-40. | ||
Lína 19: | Lína 19: | ||
[[Flokkur:Hús sem fóru undir hraun]] | [[Flokkur:Hús sem fóru undir hraun]] | ||
[[Flokkur: | [[Flokkur:Urðavegur]] | ||
{{Byggðin undir hrauninu}} | {{Byggðin undir hrauninu}} |
Útgáfa síðunnar 9. júlí 2007 kl. 12:50
Húsið Skálholt - hið yngra - stóð við Urðaveg 43. Það var stórt steinhús, með stórum kjallara, tveimur hæðum og risi. Listar kringum glugga hússins voru skrautlega steyptir, en hús- og kvistgaflar voru bogadregnir.
Húsið reisti Gísli Magnússon, útgerðarmaður, á árunum 1925-26 og kostaði það í kringum 280.000 kr, en það var himinhá upphæð á þeim tíma. Hann bjó í húsinu ásamt konu sinni Sigríði Einarsdóttur til ársins 1940 en þá missti hann eignina sökum heimskreppunnar miklu 1930-40.
Í seinni heimsstyrjöldinni tók breski herinn húsið herskildi. Það var aðsetur yfirmanna hersins og dvaldi hluti setuliðins í húsinu.
Eftir að herinn fór úr húsinu 1945 eignaðist Árni Sigfússon, útgerðarmaður og kaupmaður, húsið og bjó þar ásamt konu sinni Ólafíu Árnadóttur og börnum til ársins 1948.
Bæjarsjóður Vestmannaeyja keypti þar á eftir húsið og gerði það að elliheimili bæjarins. Elliheimilið Skálholt var vígt 11. nóvember 1950. Gegndi húsið því hlutverki alveg fram að gosi og fór að lokum undir hraun. Fyrsta forstöðukona var Lilja Finnbogadóttir og síðast var Unnur Pálsdóttir. Komu upp hugmyndir um að byggja elliheimili á Breiðablikslóð eftir gos en úr varð að elliheimilið Hraunbúðir var byggt fyrir gjafir og tekið í notkun í september 1974.
Heimildir
- Guðjón Ármann Eyjólfsson. Vestmannaeyjar - byggð og eldgos. Reykjavík: Ísafoldaprentsmiðja, 1973.
- Haraldur Guðnason. „Fyrsti vísir að elliheimili í Vestmannaeyjum.“ Tímamót málefni aldraðra. Vestmannaeyjum: Lionsklúbburinn, 1987.