„Gunnar Marel Jónsson“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 1: Lína 1:
[[Mynd:Gunnar Marel Jónsson.jpg|thumb|250px|Gunnar Marel Jónsson]]
[[Mynd:Gunnar Marel Jónsson.jpg|thumb|250px|Gunnar Marel Jónsson]]
'''Gunnar Marel Jónsson''' fæddist 6. janúar 1891 og lést 7. maí 1979. Hann flutti til Vestmannaeyja þegar hann var tvítugur. Árið 1914 kvæntist Gunnar [[Sigurlaug Pálsdóttir|Sigurlaugu Pálsdóttur]] en hún lést árið 1976. Bjuggu þau lengst af í [[Brúarhús]]i sem stóð á horni [[Vestmannabraut]]ar og [[Heimagata|Heimagötu]]. Það fór undir hraun í [[Heimaeyjargosið|gosinu]] 1973. Brúarhús var ævinlega kallað [[Hornið]] og börn þeirra Gunnars og Sigurlaugar alltaf kennd við Hornið. Á meðal sona Gunnars voru [[Jón Gunnarsson|Jón]], [[Þorsteinn Gunnarsson|Þorsteinn]] og [[Tryggvi Gunnarsson|Tryggvi]] vélstjóri, en auk hans átti hann 12 börn. Gunnar og Sigurlaug eignuðust 12 börn, en úr fyrra sambandi átti hann þrjú börn.  
'''Gunnar Marel Jónsson''' fæddist 6. janúar 1891 og lést 7. maí 1979. Hann flutti til Vestmannaeyja þegar hann var tvítugur. Árið 1914 kvæntist Gunnar [[Sigurlaug Pálsdóttir|Sigurlaugu Pálsdóttur]] en hún lést árið 1976. Bjuggu þau lengst af í [[Brúarhús]]i sem stóð á horni [[Vestmannabraut]]ar og [[Heimagata|Heimagötu]]. Það fór undir hraun í [[Heimaeyjargosið|gosinu]] 1973. Brúarhús var ævinlega kallað [[Hornið]] og börn þeirra Gunnars og Sigurlaugar alltaf kennd við Hornið. Á meðal sona Gunnars voru [[Jón Gunnarsson|Jón]], [[Þorsteinn Gunnarsson (vélstjóri)|Þorsteinn]] og [[Tryggvi Gunnarsson|Tryggvi]] allir vélstjórar, en auk hans átti hann 12 börn. Gunnar og Sigurlaug eignuðust 12 börn, en úr fyrra sambandi átti hann þrjú börn.  


Á veturna stundaði Gunnar sjómennsku en vann við smíðar á sumrin.  
Á veturna stundaði Gunnar sjómennsku en vann við smíðar á sumrin.  

Útgáfa síðunnar 28. júní 2007 kl. 08:14

Gunnar Marel Jónsson

Gunnar Marel Jónsson fæddist 6. janúar 1891 og lést 7. maí 1979. Hann flutti til Vestmannaeyja þegar hann var tvítugur. Árið 1914 kvæntist Gunnar Sigurlaugu Pálsdóttur en hún lést árið 1976. Bjuggu þau lengst af í Brúarhúsi sem stóð á horni Vestmannabrautar og Heimagötu. Það fór undir hraun í gosinu 1973. Brúarhús var ævinlega kallað Hornið og börn þeirra Gunnars og Sigurlaugar alltaf kennd við Hornið. Á meðal sona Gunnars voru Jón, Þorsteinn og Tryggvi allir vélstjórar, en auk hans átti hann 12 börn. Gunnar og Sigurlaug eignuðust 12 börn, en úr fyrra sambandi átti hann þrjú börn.

Á veturna stundaði Gunnar sjómennsku en vann við smíðar á sumrin.

Gunnar Marel er þó líklega þekktastur fyrir störf sín í skipasmíði og störf hans fyrir Dráttarbraut Vestmannaeyja en þar var hann forstöðumaður frá 1925-1958. Eftir það hafði hann yfirumsjón með allri smíðavinnu til ársins 1968. Gunnar var sæmdur riddarakrossi fálkaorðunnar árið 1940 fyrir störf sín. Stærsti báturinn sem Gunnar smíðaði var Helgi VE-33, um 100 smálestir.



Heimildir

  • Sjómannadagsblað Vestmannaeyja, 1979.