„Hilmisgata“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 18: | Lína 18: | ||
== Ónefnd hús á Hilmisgötu == | == Ónefnd hús á Hilmisgötu == | ||
* [[Hilmisgata 1]] | * [[Hilmisgata 1]] | ||
* [[Hilmisgata 2a]] | |||
* [[Hilmisgata 13]] | * [[Hilmisgata 13]] | ||
Útgáfa síðunnar 15. júní 2007 kl. 08:39
Hilmisgata fær nafn sitt frá heimsókn Kristjáns 10. Danakonungs, 25. júní árið 1921. Gatan hafði þá ekkert nafn en gekk þó undir nafninu Tukthússtígur og eftir að konungur gekk um götuna var ákveðið að kalla götuna Hilmisgötu, því hilmir merkir konungur.
Einungis 7 íbúðir eru við Hilmisgötu og skv. upplýsingum frá Vestmannaeyjabæ voru íbúar götunnar 21 talsins árið 2005. Áætlað er að byggja fjölbýlishús á reitnum þar sem lögreglustöðin gamla var en hún brann til kaldra kola árið 1988.
Húsið Arnardrangur er eitt sögufrægasta húsið í götunni. Þar hefur ýmiss konar starfsemi verið í gegnum tíðina; heilsugæsla og læknastofur, Tónlistarskólinn, aðstaða Lúðrasveitar Vestmannaeyja og AA samtökin. Nú er Rauðakrossdeildin í Vestmannaeyjum þar til húsa svo og Lionsklúbbur Vestmannaeyja. Arnardrangur var byggður árið 1928. Flest húsin á svæðinu eru byggð á sama tímabili.
Nokkrar stofnanir og félög eru í götunni; Snyrtistofa Ágústu, Rauði Krossinn, Lions-klúbburinn, Starfsmannafélag Vestmannaeyjabæjar og Akóges.
Nefnd hús á Hilmisgötu
- Akóges - 15
- Arnardrangur - 11
- Árdalur - 5
- Haukagil - 3
- Ólafsvík - 7