„Halldór Magnússon (Tungu)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''Halldór Sigurður Magnússon''', bankastarfsmaður, forstöðumaður í banka, fæddist 30. apríl 1942 í Tungu við Heimagötu 4.<br> Foreldrar hans voru Magnús Bergsson bakarameistari, f. 2. október 1898, d. 9. desember 1961, og kona hans Halldóra Valdimarsdóttir Reyndal húsfreyja, f. 9. september 1903, d. 12. júní 1942.<br> Fósturforeldrar Halldórs voru Bergþóra Bergsdóttir, fö...)
 
m (Verndaði „Halldór Magnússon (Tungu)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
 
(Enginn munur)

Núverandi breyting frá og með 15. nóvember 2024 kl. 17:31

Halldór Sigurður Magnússon, bankastarfsmaður, forstöðumaður í banka, fæddist 30. apríl 1942 í Tungu við Heimagötu 4.
Foreldrar hans voru Magnús Bergsson bakarameistari, f. 2. október 1898, d. 9. desember 1961, og kona hans Halldóra Valdimarsdóttir Reyndal húsfreyja, f. 9. september 1903, d. 12. júní 1942.
Fósturforeldrar Halldórs voru Bergþóra Bergsdóttir, föðursystir Halldórs, f. 8. nóvember 1904, d. 4. maí 1972, og Jón Björnsson, f. 31. ágúst 1903, d. 28. júní 1985.

Börn Halldóru og Magnúsar:
1. Dóra Hanna Magnúsdóttir húsfreyja, f. 27. júní 1925, d. 30. júní 2013. Maður hennar Sigmundur Andrésson.
2. Bergur Magnússon, f. 30. september 1927, d. 3. júlí 1942.
3. Þóra Magnúsdóttir húsfreyja, hjúkrunarfræðingur, f. 13. apríl 1930. Maður hennar Kristinn Pálsson, látinn.
4. Júlíus Gísli Magnússon útgerðarmaður, f. 7. júlí 1938, d. 28. október 1968. Kona hans Þórunn Gunnarsdóttir.
5. Halldór Sigurður Magnússon bankastarfsmaður, forstöðumaður, f. 30. apríl 1942. Kona hans Kristín Bjarnadóttir.

Þau Kristín giftu sig 1963, eignuðust þrjú börn. Þau búa í Rvk.

I. Kona Halldórs Sigurðar er Kristín Bjarnadóttir, húsfreyja, fyrrverandi prófessor, f. 20. september 1943. Foreldrar hennar Bjarni Vilhjálmsson, íslenskufræðingur, kennari, f. 12. júní 1915, d. 2. mars 1987, og Jóna Kristín Eiríksdóttir, húsfreyja, f. 15. mars 1916, d. 4. september 2009.
Börn þeirra:
1. Magnús Már Halldórsson, f. 2. desember 1963.
2. Valgerður Halldórsdóttir, f. 7. janúar 1969.
3. Bjarni Vilhjálmur Halldórsson, f. 28. nóvember 1973.



Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.