Sigmundur Andrésson (bakarameistari)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
(Endurbeint frá Sigmundur Andrésson)
Fara í flakk Fara í leit
Sigmundur Andrésson

Sigmundur Andrésson fæddist þann 20. ágúst árið 1922 í Nýja Bæ á Eyrarbakka.

Foreldrar hans voru Andrés Jónsson (18.10.1896 – 21.11.1978) fæddur á Litlu Háeyri á Eyrarbakka og Kristrún Ólöf Jónsdóttir (22.05-1881- 22.09.1934) fædd í Reykjahlíð, Skútustaðahreppi í S-Þingeyjarsýslu.

Afi og amma Sigmundar í föðurætt voru Jón Andrésson, bóndi á Litlu-Háeyri á Eyrarbakka (01.08.1850-31.08.1929) fædd á á Hallanda, Hraungerðishr., Árn, og kona hans Guðrún Sigmundsdóttir (29.08.1859-26.07.1932) fædd í Hrepphólum, Hrunamannahr., Árn.

Afi og amma Sigmundar í móðurætt voru Jón Pétursson (03.11.1851-16.03.1919) fæddur í Reykjahlíð, Skútustaðahreppi, S-Þingeyjarsýslu og kona hans Þuríður Hólmfríður Jónasdóttir (25.09.1841-09.10.1913) fædd á Grænavatni, Skútustaðahreppi.

Sigmundur var næstelstur af fimm systkynum. Alsystkyni Sigmundar voru Jón Pétur Andrésson (18.10.1919-15.06.2007) og Þuríður Andrésdóttir (08.03.1924-06.08.2002).

Andrés kynntist síðan Úlfhildi Hannesdóttur frá Stokkseyri (03.12.1897-04.03.1982) og áttu þau saman tvo drengi, þá Kristján Andrésson f. 25.08.35 og Hilmar Andrésson f. 01.09.1937.

Sigmundur var lengi virkur í Taflfélagi Vestmannaeyja og árið 1988 var hann kosinn heiðursfélagi Taflfélagsins fyrir áratuga störf í þágu félagsins, en heiðursfélagar hafa aðeins verið tveir frá stofnun félagsins 1926. Á páskadag 27. mars 2005 færði Sigmundur Taflfélaginu skákbókasafn sitt að gjöf ásamt úrklippusafni um skák. Ræða hans af því tilefni má finna á síðu um Taflfélag Vestmannaeyja í kaflanum um 10 áratuginn.