„Sigfús Jörundur Johnsen“: Munur á milli breytinga
(texti úr tilkynningu í morgunblaðinu) |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 12: | Lína 12: | ||
Sigfús var frumkvöðull í ferða- og samgöngumálum á yngri árum, stofnaði Eyjaflug til að bæta samgöngur milli lands og Eyja og stofnaði og rak ferðaskrifstofu frá Vestmannaeyjum sem þúsundir landsmanna nýttu. Sigfús var fram eftir aldri virkur bjargveiðimaður í Eyjum og var kjörinn heiðursfélagi í Bjargveiðifélagi [[Bjarnarey|Bjarnareyinga]] 2004. Sigfús var virkur í starfi Freeport-klúbbsins og formaður hans um tíma. Þá starfaði Sigfús um árabil í [[Gídeonfélagið|Gideon-hreyfingunni]]. | Sigfús var frumkvöðull í ferða- og samgöngumálum á yngri árum, stofnaði Eyjaflug til að bæta samgöngur milli lands og Eyja og stofnaði og rak ferðaskrifstofu frá Vestmannaeyjum sem þúsundir landsmanna nýttu. Sigfús var fram eftir aldri virkur bjargveiðimaður í Eyjum og var kjörinn heiðursfélagi í Bjargveiðifélagi [[Bjarnarey|Bjarnareyinga]] 2004. Sigfús var virkur í starfi Freeport-klúbbsins og formaður hans um tíma. Þá starfaði Sigfús um árabil í [[Gídeonfélagið|Gideon-hreyfingunni]]. | ||
Eftirlifandi eiginkona Sigfúsar er [[Kristín Sigríður Þorsteinsdóttir]]. Börn þeirra eru [[Þorsteinn Ingi Sigfússon|Þorsteinn Ingi]], [[Árni Sigfússon (borgarstjóri)|Árni]], [[Gylfi Sigfússon|Gylfi]], [[Margrét Sigfúsdóttir|Margrét]], [[Þór Sigfússon|Þór]] og [[Sif Sigfúsdóttir|Sif]]. | Eftirlifandi eiginkona Sigfúsar er [[Kristín Sigríður]] [[Þorsteinn Þ. Víglundsson | Þorsteinsdóttir]]. Börn þeirra eru [[Þorsteinn Ingi Sigfússon|Þorsteinn Ingi]], [[Árni Sigfússon (borgarstjóri)|Árni]], [[Gylfi Sigfússon|Gylfi]], [[Margrét Sigfúsdóttir|Margrét]], [[Þór Sigfússon|Þór]] og [[Sif Sigfúsdóttir|Sif]]. | ||
{{Heimildir| | {{Heimildir| |
Útgáfa síðunnar 6. nóvember 2006 kl. 09:59
Sigfús Jörundur Árnason Johnsen
Sigfús fæddist í Vestmannaeyjum 25. nóvember 1930 og lést 2. nóvember 2006. Foreldrar hans voru Margrét Marta Jónsdóttir (fædd að Kirkjulandi í Landeyjum 5. mars 1895, dáin 15. maí 1948) og Árni J. Johnsen (fæddur í Fridendal 13. október 1892, dáinn 15. apríl 1963).
Eftir brautskráningu frá Verslunarskóla Íslands og kennarapróf gerðist Sigfús kennari og síðar yfirkennari við Gagnfræðaskólann í Vestmannaeyjum.
Eftir flutning til Reykjavíkur 1969 starfaði hann lengst af sem kennari við Vogaskóla og síðar félagsmálastjóri í Garðabæ.
Hann var virkur í starfi Sjálfstæðisflokksins frá unga aldri og gegndi ýmsum trúnaðarstörfum á þeim vettvangi, s.s. formennsku Eyverja, félags ungra sjálfstæðismanna í Vestmannaeyjum, varaformennsku í Sambandi ungra sjálfstæðismanna, varaþingmennsku fyrir Suðurlandskjördæmi og formennsku í félagi sjálfstæðismanna í Hóla- og Fellahverfi í Reykjavík.
Sigfús var frumkvöðull í ferða- og samgöngumálum á yngri árum, stofnaði Eyjaflug til að bæta samgöngur milli lands og Eyja og stofnaði og rak ferðaskrifstofu frá Vestmannaeyjum sem þúsundir landsmanna nýttu. Sigfús var fram eftir aldri virkur bjargveiðimaður í Eyjum og var kjörinn heiðursfélagi í Bjargveiðifélagi Bjarnareyinga 2004. Sigfús var virkur í starfi Freeport-klúbbsins og formaður hans um tíma. Þá starfaði Sigfús um árabil í Gideon-hreyfingunni.
Eftirlifandi eiginkona Sigfúsar er Kristín Sigríður Þorsteinsdóttir. Börn þeirra eru Þorsteinn Ingi, Árni, Gylfi, Margrét, Þór og Sif.
Heimildir
- Morgunblaðið, 4. nóvember 2006.