„Kristbjörg Sigurjónsdóttir (Skógum)“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: '''Kristbjörg Ingileif Sigurjónsdóttir''' frá Skógum við Bessastíg 8, húsfreyja, ræstitæknir fæddist þar 11. desember 1931.<br> Foreldrar hennar voru Sigurjón Ingvarsson skipstjóri, f. 20. desember 1895 að Klömbru u. Eyjafjöllum, d. 29. mars 1986, og kona hans Hólmfríður Guðjónsdóttir húsfreyja, f. 2. nóvember 1906 á Hólmi í Stokkseyrarhreppi, d. 11. mars...) |
m (Verndaði „Kristbjörg Sigurjónsdóttir (Skógum)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 2. nóvember 2022 kl. 18:55
Kristbjörg Ingileif Sigurjónsdóttir frá Skógum við Bessastíg 8, húsfreyja, ræstitæknir fæddist þar 11. desember 1931.
Foreldrar hennar voru Sigurjón Ingvarsson skipstjóri, f. 20. desember 1895 að Klömbru u. Eyjafjöllum, d. 29. mars 1986, og kona hans Hólmfríður Guðjónsdóttir húsfreyja, f. 2. nóvember 1906 á Hólmi í Stokkseyrarhreppi, d. 11. mars 1991.
Börn Hólmfríðar og Sigurjóns:
1. Ingvar Sigurjónsson sjómaður, trésmiður, f. 7. júní 1926 á Búðarfelli, d. 15. júlí 2015.
2. Jóhanna Sigurjónsdóttir húsfreyja á Skagaströnd, f. 13. júní 1928 á Heiðarbóli, d. 14. desember 1990.
3. Kristbjörg Ingileif Sigurjónsdóttir húsfreyja, ræstingakona, f. 11. desember 1931 í Skógum.
4. Ása Hólmfríður Sigurjónsdóttir húsfreyja, f. 2. nóvember 1944 í Skógum, d. 28. ágúst 2020.
Kristbjörg var með foreldrum sínum.
Þau Grétar giftu sig 1950, eignuðust fjögur börn. Þau bjuggu á Vallargötu 4.
Grétar fórst með vb. Þráni 1968.
Kristbjörg býr við Eyjahraun.
I. Maður Kristbjargar, (31. október 1950), var Grétar Skaftason skipstjóri, f. 20. október 1926 á Suður-Fossi í Mýrdal, drukknaði 5. nóvember 1968.
Börn þeirra:
1. Ingólfur Grétarsson stýrimaður, skipstjóri, f. 7. september 1950 á Bessastíg 8. Fyrrum kona hans Ásta Finnbogadóttir.
2. Sigurjón Ragnar Grétarsson stýrimaður, skipstjóri, rafeindavirki, f. 21. október 1954 á Vallargötu 4. Kona hans Þórgunnur Hjaltadóttir.
3. Ófeigur Grétarsson rafeindavirki, f. 11. október 1962 að Vallargötu 4. Kona hans Ragnheiður Þorvaldsdóttir, látin.
4. Gréta Hólmfríður Grétarsdóttir kaupmaður, sjúkraliði, f. 4. febrúar 1969. Maður hennar Heiðar Hinriksson.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.
- Prestþjónustubækur.
- Skipstjóra- og stýrimannatal. Guðmundur Jakobsson. Ægisútgáfan 1979.
- Ættingjar.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.