„Sigurður Þór Guðjónsson“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: '''Sigurður Þór Guðjónsson''' frá Hásteinsvegi 49, rithöfundur fæddist þar 10. október 1947.<br> Foreldrar hans voru Guðjón Vigfússon skipstjóri, hafnsögumaður, f. 15. september 1902 á Grenivík, d. 26. nóvember 1996, og þriðja kona hans Sigurrós Sóley Sigurðardóttir frá Fagurhól við Strandveg 55, húsfreyja, f. 9. nóvember 1913, d. 3. september 2001. Börn Sigurrósar og Gu...) |
m (Verndaði „Sigurður Þór Guðjónsson“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Núverandi breyting frá og með 30. október 2022 kl. 16:30
Sigurður Þór Guðjónsson frá Hásteinsvegi 49, rithöfundur fæddist þar 10. október 1947.
Foreldrar hans voru Guðjón Vigfússon skipstjóri, hafnsögumaður, f. 15. september 1902 á Grenivík, d. 26. nóvember 1996, og þriðja kona hans Sigurrós Sóley Sigurðardóttir frá Fagurhól við Strandveg 55, húsfreyja, f. 9. nóvember 1913, d. 3. september 2001.
Börn Sigurrósar og Guðjóns:
1. Guðný Svava Guðjónsdóttir myndlistarmaður, f. 1. ágúst 1945 á Strandbergi, d. 19. september 2022. Fyrrum maður hennar Benedikt Jónsson.
2. Helga Guðjónsdóttir skrifstofumaður, f. 10. október 1947 á Hásteinsvegi 49.
3. Sigurður Þór Guðjónsson rithöfundur, f. 10. október 1947 á Hásteinsvegi 49.
Börn Guðjóns úr öðru hjónabandi og fósturbörn Sigurrósar Sóleyjar:
4. Birgir Guðjónsson læknir í Reykjavík, f. 8. nóvember 1938. Kona hans Heiður Vigfúsdóttir.
5. Ingvi Þór Guðjónsson málarameistari, sjúkrahússráðsmaður á Blönduósi, f. 28. nóvember 1939, d. 9. júní 2022. Kona hans Sigríður Baldursdóttir.
Barn Guðjóns úr fyrsta hjónabandi:
6. Bergþóra Guðjónsdóttir húsfreyja á Húsavík, f. 27. maí 1932, d. 30. maí 2016. Maður hennar Höskuldur Sigurjónsson.
Sigurður Þór var með foreldrum sínum í æsku, í Eyjum og Reykjavík.
Hann lauk landsprófi 1967, stundaði nám í tónlist.
Sigurður Þór hefur stundað ýmsa vinnu, m.a. samið útvarpsþætti um klassíska tónlist.
Þá hefur Sigurður Þór gefið út tvær bækur.
Rit:
1. Truntusól, útg. 1973.
2. Í leit að sjálfum sér, útg. 1976.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.
- Prestþjónustubækur.
- Sigurður Þór.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.