„Helgi Bjarni Jónsson (Sólvangi)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''Helgi Bjarni Jónsson''' á Sólvangi við Kirkjuveg 29, búfræðingur, bóndi og smiður fæddist 27. febrúar 1881 að Áskoti í Melasveit, Borg. og lést 13. janúar 1943.<br> Foreldrar hans voru Jón Jónsson bóndi, vefari á Indriðastöðum, Narfastöðum, Geldingaá og í Áskoti, f. 17. nóvember 1840 í Deildartungu, Borg., d. 23. október 1889, og kona hans, (1869), Kristín Jónasdóttir húsfreyja, f. 20...)
 
m (Verndaði „Helgi Bjarni Jónsson (Sólvangi)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 29. september 2022 kl. 13:24

Helgi Bjarni Jónsson á Sólvangi við Kirkjuveg 29, búfræðingur, bóndi og smiður fæddist 27. febrúar 1881 að Áskoti í Melasveit, Borg. og lést 13. janúar 1943.
Foreldrar hans voru Jón Jónsson bóndi, vefari á Indriðastöðum, Narfastöðum, Geldingaá og í Áskoti, f. 17. nóvember 1840 í Deildartungu, Borg., d. 23. október 1889, og kona hans, (1869), Kristín Jónasdóttir húsfreyja, f. 20. desember 1843, d. 2. febrúar 1917 í Eyjum.

Helgi var með foreldrum sínum, en faðir hans lést, er Helgi var á 9. árinu. Hann var með ekkjunni móður sinni í Áskoti í Leirársókn, Borg. 1890.
Helgi Bjarni varð búfræðingur á Hvanneyri í Borgarfirði.
Hann var hjú í Þingnesi í Borgarfirði 1901, lausamaður á Ormsstöðum á Skarðsströnd, Dal. 1907-1911 og 1912-1913, á Kýrunnarstöðum í Dal. 1911-1912.
Helgi var bóndi á Jarðlangsstöðum í Borgarhreppi, Mýr. 1913-1915, húsmaður á Vatni í Haukadal 1918, bóndi á Glæsivöllum í Miðdölum, Dal. 1919-1922, vann á netaverkstæði í Eyjum frá 1922 meðan heilsa leyfði, en hann var sjúklingur síðustu ár sín.
Þau Jósefina giftu sig 1913, eignuðust fimm börn. Þau fluttu til Eyja 1922, bjuggu á Sólvangi.
Helgi Bjarni lést 1943 og Jósefína 1971.

I. Kona Helga Bjarna, (1913), var Jósefína Sigurðardóttir húsfreyja, vökukona, fiskverkakona, f. 19. apríl 1892, d. 25. nóvember 1971.
Börn þeirra:
1. Guðrún Helgadóttir hjúkrunarfræðingur í Eyjum og Hveragerði, f. 11. júní 1914, d. 14. júní 2000. Maður hennar Ársæll Karlsson vélstjóri.
2. Kristín Helgadóttir húsfreyja, f. 6. nóvember 1918, d. 10. júní 2005. Maður hennar Haraldur Sigurðsson vélstjóri.
3. Hólmfríður Helgadóttir húsfreyja, verkakona í Reykjavík, f. 7. mars 1921, d. 8. september 2009. Maður hennar Kristján Fr. Kristjánsson verslunarmaður.
4. Halldóra Helgadóttir lyfjatæknir, verslunarmaður, f. 16. ágúst 1922, d. 1. maí 1993. Barnsfaðir hennar Haraldur Steingrímsson rafvirki.
5. Þrúður Helgadóttir húsfreyja á Hellu, Rang., f. 26. júlí 1925, d. 18. nóvember 2005.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Borgfirzkar æviskrár. Margir höfundar. Sögufélag Borgarfjarðar 1969-2007.
  • Íslendingabók.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.