„Baldur Þór Baldvinsson“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''Baldur Þór Baldvinsson''' frá SteinholtI, húsasmíðameistari fæddist 19. júní 1941.<br> Foreldrar hans voru Baldvin Skæringsson frá Rauðafelli u. Eyjafjöllum, sjómaður, matsveinn, stýrimaður, skipstjóri, bátasmiður, f. 30. ágúst 1915, d. 24. febrúar 2006, og kona hans Þórunn Elíasdóttir húsfreyja, f. 1. desember 1916, d. 29. júlí 1990. Börn Þórunnar og Baldvins:...)
 
m (Verndaði „Baldur Þór Baldvinsson“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 6. september 2022 kl. 18:00

Baldur Þór Baldvinsson frá SteinholtI, húsasmíðameistari fæddist 19. júní 1941.
Foreldrar hans voru Baldvin Skæringsson frá Rauðafelli u. Eyjafjöllum, sjómaður, matsveinn, stýrimaður, skipstjóri, bátasmiður, f. 30. ágúst 1915, d. 24. febrúar 2006, og kona hans Þórunn Elíasdóttir húsfreyja, f. 1. desember 1916, d. 29. júlí 1990.

Börn Þórunnar og Baldvins:
1. Kristín Elísa Baldvinsdóttir húsfreyja, starfsmaður Íslandspósts, f. 19. ágúst 1936 á Bala í Djúpárhreppi, d. 19. júlí 2003. Maður hennar Hörður Runólfsson.
2. Elías Baldvinsson slökkviliðsstjóri, f. 1. júní 1938 á Háarima í Djúpárhreppi, d. 16. september 2003. Kona hans Halla Guðmundsdóttir, látin.
3. Baldur Þór Baldvinsson húsasmíðameistari í Kópavogi, f. 19. júní 1941 á Staðarfelli. Fyrrum kona hans Arndís Ármann Steinþórsdóttir. Kona hans Hugrún Hlín Ingólfsdóttir, látin.
4. Kristinn Skæringur Baldvinsson húsasmíðameistari í Eyjum, f. 29. júní 1942 í Steinholti. Kona hans Sigríður Mínerva Jensdóttir.
5. Ragnar Þór Baldvinsson bifvélavirki, slökkviliðsstjóri í Eyjum, f. 31. desember 1945 í Steinholti. Kona hans Anna Jóhannsdóttir.
6. Birgir Þór Baldvinsson grunnskólakennari í Reykjavík, f. 15. janúar 1952 í Steinholti. Kona hans Halldóra N. Björnsdóttir.
7. Hrefna Baldvinsdóttir húsfreyja, launafulltrúi hjá Vestmannaeyjabæ, f. 23. janúar 1954 í Steinholti. Maður hennar Snorri Þ. Rútsson.
8. Baldvin Gústaf Baldvinsson sagnfræðingur, framkvæmdastjóri hjá Sea Food, dótturfyrirtæki Samherja í Hull, f. 30. ágúst 1957. Kona hans Anna Gunnlaugsdóttir.
9. Hörður Baldvinsson safnstjóri Byggðasafns Vestmannaeyja, síðan forstöðumaður Þekkingarsetursins, f. 25. nóvember 1961. Kona hans Bjarney Magnúsdóttir.

Baldur Þór var með foreldrum sínum í æsku.
Hann lærði húsasmíði og öðlaðist meistararéttindi í greininni.
Þau Arndís giftu sig, eignuðust tvö börn, en skildu.
Þau Hugrún Inga giftu sig 1998, eignuðust ekki börn saman. Hugrún Inga lést 2003.

I. Kona Baldurs Þórs var Arndís Ármann Steinþórsdóttir, f. 10. september 1946. Þau skildu. Foreldrar hennar voru Steinþór Gunnar Marteinsson frá Fáskrúðsfirði, verslunarmaður, kaupmaður, f. 18. júní 1910, d. 12. október 2000, og kona hans Unnur Karmen Valdimarsdóttir Ármann húsfreyja, f. 4. febrúar 1912, d. 12. september 1980.
Börn þeirra:
1. Steinþór Baldursson, f. 8. júlí 1966. Sambúðarkona hans Claire Bilton.
2. Unnur Baldursdóttir, f. 26. október 1969. Maður hennar Guðbjörn Ingason.

II. Kona Baldurs var Hugrún Hlín Ingólfsdóttir húsfreyja, f. 25. ágúst 1948, d. 3. maí 2003.
Þau voru barnlaus.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.