„Kolbrún Guðmundsdóttir (Stapa)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''Sigurbjörg ''Kolbrún'' Guðmundsdóttir''' frá Stapa, húsfreyja fæddist 30. nóvember 1924 á Bergi við Bárustíg 4 og lést 12. apríl 1975. <br> Foreldrar hennar voru Guðmundur Jónsson sjómaður, verkamaður, f. 20. október 1897 á Ragnheiðarstöðum í Flóa, d. 15. júlí 1965 í Hafnarfirði og sambúðarkona hans Guðbjörg Guðmundsdóttir frá Kagaðarhóli á Ásum...)
 
m (Verndaði „Kolbrún Guðmundsdóttir (Stapa)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 28. júní 2022 kl. 14:46

Sigurbjörg Kolbrún Guðmundsdóttir frá Stapa, húsfreyja fæddist 30. nóvember 1924 á Bergi við Bárustíg 4 og lést 12. apríl 1975.
Foreldrar hennar voru Guðmundur Jónsson sjómaður, verkamaður, f. 20. október 1897 á Ragnheiðarstöðum í Flóa, d. 15. júlí 1965 í Hafnarfirði og sambúðarkona hans Guðbjörg Guðmundsdóttir frá Kagaðarhóli á Ásum í A.-Hún., f. 16. ágúst 1894, d. 2. maí 1976.

Börn Guðbjargar og Magnúsar Valdimars Jónssonar skipasmiðs á Bergi:
1. Jóna Ingibjörg Magnúsdóttir talsímakona, f. 19. september 1916, d. 20. október 1938.
2. Magnúsína Guðbjörg Magnúsdóttir húsfreyja á Stapa, síðar í Hveragerði, f. 14. apríl 1920, d. 11. mars 2005. Maður hennar var Engilbert Þorbjörnsson bifreiðastjóri.

Börn Guðbjargar og sambúðarmanns hennar Guðmundar Jónssonar sjómanns, verkamanns á Stapa, f. 20. október 1897, d. 15. júlí 1965:
3. Guðmunda Jóna Margrét Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 19. desember 1922, d. 10. október 1984.
4. Sigurbjörg Kolbrún Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 30. nóvember 1924, d. 12. apríl 1975.
5. Friðbjörg Guðmundsdóttir, síðast í Reykjavík, f. 10. mars 1926 á Bólstað, d. 30. júlí 1997.
6. Jón Egilsson Guðmundsson, f. 28. september 1927, d. fyrir 1930.
7. Þóra Egilsína Guðmundsdóttir, f. 4. janúar 1930 á Bessastíg 4, d. 9. júlí 2008.
Fósturbörn þeirra Guðmundar voru:
8. Dóttursonur Guðbjargar, Arnar Semingur Andersen sjómaður, f. 12. október 1935, sonur Jónu Ingibjargar Magnúsdóttur. Faðir hans var Svend Ove Andersen frá Friðrikssundi í Danmörku.
9. Dótturdóttir Guðbjargar, dóttir Kolbrúnar, Ingibjörg Nancy Kudrick Morgan, f. 12. júlí 1943.

Kolbrún var með foreldrum sínum í æsku og enn 1945.
Hún eignaðist barn með Theodore Fredrick í Reykjavík 1943.
Þau Valtýr giftu sig, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu í Hítarneskoti í Kolbeinsstaðahreppi til 1969, en þá fluttu þau á Rif á Snæfellsnesi.
Sigurbjörg Kolbrún lést 1975 og Valtýr 2003.

I. Barnsfaðir Kolbrúnar var Theodore Fredrick Kudrick frá Fíladelfíu í Bandaríkjunum.
Barn þeirra:
1. Ingibjörg Nancy Kudrick Morgan, f. 12. júlí 1943 í Reykjavík, d. 13. nóvember 2019. Hún bjó í Bandaríkjunum 1986. Maður hennar Kenneth Morgan.

II. Maður Kolbrúnar var Valtýr Júlíusson bóndi í Hítarneskoti í Kolbeinsstaðahreppi, verkamaður, bóndi, héraðslögregluþjónn á Snæfellsnesi, f. 15. mars 1923 í Hítarnesi, d. 26. apríl 2003 á Akranesi. Foreldrar hans voru Júlíus Jónsson b´ndi í Hítarnesi, f. 23. júlí 1885, d. 16. ágúst 1975, og Kristín Stefánsdóttir húsfreyja, f. 29. maí 1891, d. 31. desember 1958.
Börn þeirra:
1. Reynir Valtýsson, f. 14. febrúar 1946. Kona hans Berglind Gestsdóttir.
2. Bjarni Valur Valtýsson, f. 29. júní 1963. Kona hans Margrét Þorsteinsdóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.