„Bragi Júlíusson (verkstjóri)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: thumb|150px|''Bragi Júlíusson. '''Bragi Júlíusson''' úr Þykkvabæ, Rang., vélstjóri, vélvirki, verkstjóri fæddist 11. september 1953 í Nor...)
 
m (Verndaði „Bragi Júlíusson (verkstjóri)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 10. nóvember 2021 kl. 11:05

Bragi Júlíusson.

Bragi Júlíusson úr Þykkvabæ, Rang., vélstjóri, vélvirki, verkstjóri fæddist 11. september 1953 í Norður-Nýjabæ þar og lést 20. júní 2021 í Eyjum.
Foreldrar hans voru Júlíus Fjeldsteð Óskarsson bóndi, síðar umsjónarmaður í Keflavík, f. 13. apríl 1914 á Hellissandi, Snæf., d. 30. september 1992, og kona hans Guðmunda Erlendsdóttir húsfreyja, f. 27. október 1920 á Ísafirði, d. 15. maí 1984.

Systir Braga í Eyjum var
1. Lilja Júlíusdóttir húsfreyja, f. 25. desember 1951. Maður hennar Ólafur Guðmundsson vélstjóri.

Bragi var með foreldrum sínum í æsku og vann við bú foreldra sinna.
Hann nam við Vélskólann í Eyjum, lauk náminu í Reykjavík 1973, einnig lærði hann vélvirkjun í Eyjum og lauk því námi 1985.
Bragi var vélstjóri á ýmsum bátum frá Eyjum uns hann hóf nám í vélvirkjun.
Eftir að hann hætti sjómennsku var hann verkstjóri hjá Eimskip og Ísfélagi Vestmannaeyja (F.E.S.) fram að veikindum sínum.
Þau Sigþóra giftu sig 1974, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu á Heiðarvegi 9a, en síðar á Búastaðabraut 16.
Bragi lést 2021.

I. Kona Braga, (25. maí 1974), er Sigþóra Björgvinsdóttir frá Úthlíð, húsfreyja, f. 17. janúar 1954.
Börn þeirra:
1. Björg Ólöf Bragadóttir húsfreyja, þroskaþjálfi í Eyjum, f. 4. febrúar 1973. Maður hennar Valgeir Sigurjónsson frá Patreksfirði.
2. Gylfi Bragason rafvirki, f. 11. september 1980. Kona hans Edda Svandís Einarsdóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.